flugfréttir
Ryanair segir verkfall flugmanna vera kúgun
Boeing 737-800 þotur Ryanair
Stjórn írska lágfargjaldafélagsins Ryanair gerði engar tilraunir um helgina til þess að koma til móts við kröfur írska flugmanna sem hafa boðað til verkfallsaðgerða næstkomandi fimmtudag.
Ryanair fyrirlítur verkfallsaðgerðirnar og segir að um „kúgun“ sé að ræða
í litlum hópi „uppreisnarseggja“ meðal flugmanna sem staðsettir eru í Dublin
og segir félagið að reynt verði að koma í veg fyrir aðgerðirnar.
Stjórn félagsins segir að flugmennirnir hefi ekkert leyfi fyrir verkfallsaðgerðunum
og sé ekki á döfunni að setjast að samningarborði við flugmenn félagsins í Dublin.
Ryanair hefur sent frá sér tilkynningu til starfsmanna sinna þar sem varað
er við mögulegum töfum á flugi til og frá Dublin þann 12. júlí næstkomandi og
segir félagið að verkfallsaðgerðirnar sé tilraun til „kúgunar“ sem verður stöðvuð.
Írska stéttarfélagið Fórsa túlkar tilkynninguna frá Ryanair sem mikil vonbrigði
sem endurspegla viðhorf sem eiga ekki eftir að koma til með að leysa vandann.
Um 350 flugmenn í Dublin starfa hjá Ryanair en 94 af þeim ætla að taka
þátt í verkfallsaðgerðunum á fimmtudaginn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.