flugfréttir
Forsætisráðherra strandaglópur vegna skorts á eldsneyti
- Fengu ekki afgreitt eldsneyti vegna skuldar - Stjórn félagsins rekin
Carlos Agostinho do Rosário, forsætisráðherra Mósambík
Allir meðlimir í stjórn flugfélagsins LAM Mozambique Airlines hafa verið reknir úr stólnum eftir að forsætisráðherra Mósambík verð strandaglópur á flugvellinum í Mapútó þar sem ekki var hægt að afgreiða eina af flugvélum ríkisflugfélagsins um eldsneyti vegna skulda.
LAM Mozambique Airlines, sem er ríkisflugfélag landsins, hefur átt í miklum fjárhagserfiðleikum undanfarin
ár og hefur félagið meðal annars ekki náð að greiða útistandandi skuldir vegna eldsneytis
sem varð til þess að birgjar lokuðu fyrir eldsneytisforða félagsins á flugvellinum í Mapútó sl. fimmtudag.
Á sama augnarbliki var Carlos Agostinho do Rosário, forsætisráðherra Mósambík, á leið í embættisferð til Niassa í norðurhluta landsins með áætlunarflugi
félagsins en félagið neyddist til þess að aflýsa fluginu þar sem félagið fékk ekki eldsneytisafgreiðslu á þotuna.
Embraer-þota LAM Mozambique Airlines á flugvellinum í Mapútó
„LAM Mozambique Airlines staðfestir að fjármagnið er af skornum skammti og þar af leiðandi gátum við ekki sett eldsneyti á flugvélina“, segir í yfirlýsingu og tekur flugfélagið
fram að þetta hafi verið mjög „vandræðalegt“ en forsætisráðherranum var flogið til Niassa með flugvél á vegum flughersins.
Reglulega hefur LAM Mozambique Airlines þurft að aflýsa flugi vegna fjárhagsörðuleika og var
mörgum flugferðum aflýst í seinustu viku.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.