flugfréttir
Volga-Dnepr ferjar stærsta þotuhreyfil heims á milli staða
Volga-Dnepr flaug með hreyfilinn frá Victorville í Kaliforníu til Peeples í Ohio
Rússneska fraktflugfélagið Volga-Dnepr flaug á dögunum stærsta þotuhreyfli heims frá Kaliforníu til Ohio en viðskiptavinurinn er framleiðandi hreyfilsins, General Electric.
Prófanir hafa farið fram að undanförnu með GE9X hreyfilinn í Victorville í Kaliforníu en hreyfillinn mun knýja
áfram arftaka Boeing 777 þotunnar sem kemur á markað árið 2019.
General Electric hefur mjög stífa tilraunaáætlun varðandi hreyfilinn þar sem enginn tími má fara til
spillis og þurfti fyrirtækið að fá hreyfilinn eins fljótt og auðið var til höfuðstöðva sinna í Peeples í Ohio.
Hreyfillinn, sem vegur um 9 tonn, verður stærsti þotuhreyfill sögunnar þegar hann verður tilbúinn til afhendingar
en GE9X mun skila afli upp á 105.000 lbs sem þýðir að hann verður meira en þrisvar sinnum öflugri
samanborið við CFM56 hreyfilinn sem finna má á Airbus A320 þotum.
GE9X hreylinum komið fyrir um borð í Antonov An-124 fraktþotu frá Volga-Dnepr
Vegna umfangsins þá dugði ekkert minna til en Antonov An-124 fraktþota frá Volga-Dnepr og er þetta í annað skipti
sem flugfélagið rússneska flytur hreyfilinn milli stað fyrir General Electric.
Það tók 2 ár að undirbúa flutninginn og þurfti að kalla til sérfræðinga og verkfræðinga frá General Electric
auk hleðslumeistara frá Volga-Dnepr.
Samstarfs General Electric og Volga-Dnepr má rekja aftur til ársins 1992 en þá var fyrsta fraktflugið farið með GE90
hreyfilinn sem GE Aviaton framleiddi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.