flugfréttir

Saudia í viðræðum um kaup á Boeing 777X

10. júlí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 08:13

Saudi Arabian Airlines hefur 42 Boeing 777 þotur í flota sínum af gerðinni Boeing 777-200ER og 777-300ER

Saudi Arabian Airlines er sagt í viðræðum við Boeing um mögulega pöntun í arftaka Boeing 777 þotunnar.

Saudia hefur 42 Boeing 777 þotur í flota sínum sem eru flestar komnar til ára sinna en sjö þeirra eru af gerðinni Boeing 777-200ER en 35 af lengri gerðinni, Boeing 777-300ER.

Samkvæmt nokkrum heimildarmönnum þá er félagið að athuga hvort að Boeing 777X sé vænlegur kostur en ekki er vitað hversu margar þotur stendur til að panta.

Hvorki Boeing né Saudi Arabian Airlines hafa viljað staðfesta viðræðurnar en einn yfirmaður félagsins sagði í nóvember í fyrra að til stæði að leggja inn pöntun í nýjar breiðþotur árið 2018.

Töluverð pressa er á Boeing að selja fleiri breiðþotur þar sem margt bendir til þess að ekkert verði af þeirri pöntun sem Iran Air lagði inn til Boeing í 80 breiðþotur eftir að Bandaríkjastjórn ákvað að hætta við kjarnorkusamkomulagið sem gert var við Írani.

Þá hefur Etihad Airways einnig sagt að félagið sé að endurmeta flotastefnu sína þar sem taprekstur félagsins hefur verið töluverður sl. tvö ár en það félagið hefur nú þegar pantað 25 þotur af gerðinni Boeing 777-8 og Boeing 777-9.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga