flugfréttir
Norðmenn hefja prófanir með litla rafmagnsflugvél
- P2 Xcursion mun koma með flugþol upp á 1:45 klukkustund
Norska rafmagnsflugvélin P2 Xcusion hefur sig á loft í fyrsta tilraunafluginu á Eggemoen Technology Park flugvellinum í Noregi
Norska fyrirtækið, Equator Aircraft Norway, segir að fyrirtækið hafi flogið fyrsta, stöðuga tilraunarflugið með rafmagnsflugvélinni P2 Xcursion á dögunum.
Flugstjórinn í fyrsta rafmagnsfluginu var Eskil Amdal en vélin hóf sig á loft frá brautinni eftir að hún náði 70 kt hraða
og kom inn til lendingar á um 100 hnútum.
Amdal sagði að fluginu loknu að stöðugleiki vélarinnar um alla ásanna þrjá hafi verið mjög góður og var vélinni flogið
aftur tvö tilraunarflug til viðbótar daginn eftir.
Fyrirtækið segir að til standi að bjóða upp á tvær tegundir af flugvélinni er kemur að aflgjafa og verður bæði hægt að
fá hana í „hybrid-útgáfu“ og einnig sem flugvél sem gengur eingöngu fyrir rafmagni.
Tilraunarflugmaðurinn Eskil Amdal í rafmagnsflugvélinni. Í farþegasætinu sést rafhlaða vélarinnar sem notuð er við prófanirnar
Fyrsta tilraunarvélin gengur aðeins fyrir rafmagni og getur hún flogið í 35 mínútur með fulla hleðslu en til stendur
að sölueintökin muni hafa flugþol upp á 1 klukkustund og 45 mínútur en „hybrid-útgáfan“ mun geta flogið í allt
að sex klukkustundir með blöndu af rafmagni og eldsneyti.
„Okkur hlakkar núna til þess að halda prófunum áfram og fá ítarlegri gögn úr þeim tilraunum sem framundan eru“, segir
Tomas Brødreskift, framkvæmdarstjóri Equator Aircraft Norway og hönnuður vélarinnar sem verður einnig smíðuð sem sjóflugvél.
Næsti liður í flugprófunum verður að fljúga vélinni milli tveggja flugvalla sem krefst frekari leyfa sem verið er að sækja
um frá norskum flugmálayfirvöldum.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.