flugfréttir
CSeries breytist í Airbus A220
CS300 þotan heitir núna Airbus A220-300
Airbus hefur formlega breytt nafni CSeries-þotunnar yfir í Airbus A220 í kjölfar yfirtöku á framleiðslu flugvélanna sem smíðaðar eru af Bombardier.
Búið er að mála CS300 tilraunarþotu í litum Airbus sem heitir í dag Airbus A220-300 og lenti vélin í dag í Toulouse
í nýju Airbus-litunum en Airbus mun sýna vélina á Farnborough-flugsýningunni sem hefst næstkomandi mánudag, 16. júlí.
Minni CSeries-þotan, CS100, mun fá nafnið Airbus A220-100 og eru báðar flugvélategundirnar núna hluti af vöruúrvali
Airbus sem mun sjá um sölu vélanna.
Það var þann 17. október 2017 sem tilkynnt var um að Airbus myndi kaupa helmingshlut í CSeries-framleiðslunni
en Airbus tók formlega við stjórn framleiðslunnar þann 1. júlí sl.
Í síðustu viku tilkynnti Boeing um svipaða yfirtöku með kaupum á farþegaþotuframleiðslunni hjá Embraer í Brasilíu og hafa því bæði Boeing og Airbus tryggt sér sterka stöðu á markaði minni farþegaþotna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.