flugfréttir

Convair-flugvél á leið á safn í Hollandi fórst í Suður-Afríku

- 64 ára gömu flugvél var á leið í langt ferjuflug yfir Afríku og Evrópu

10. júlí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 17:36

ZS-BRV var endurmáluð í litum Martins Air Charter fyrir afhendingarflugið til Hollands

Að minnsta kosti einn lét lífið og nítján eru særðir eftir flugslys í Suður-Afríku í dag er gömul flugvél af gerðinni Convair CV-340 fórst skömmu eftir flugtak frá flugvellinum í Wonderboom, skammt frá höfuðborginni, Pretoria.

Flugvélin var í eigu flugfélagsins Rosov Air sem hefur í 16 ár boðið ferðamönnum upp á á leigu- og útsýnisflug með gömlum flugvélum að náttúruperlum og þekktum stöðum í Suður-Afríku og nágrenni á borð við Viktoríufossa.

Rosov Air hafði nýlega fært flugsafni einu í Hollandi Concair CV-340 flugvélina að gjöf og stóð til að fljúga henni yfir Afríku á tæpum tveimur vikum og var von á vélinni til Lelystad þann 23. júlí næstkomandi.

Tildrög slyssins eru ókunn en fram kemur að vélin hafi verið í tilraunaflugi fyrir afhendingarflugið til flugsafnsins hollenska og sáu sjónarvottar reyk frá vélinni skömmu eftir flugtakið frá Wonderboom.

Flak vélarinnar í dag skammt frá flugvellinum í Wonderboom

Vélin fórst í aðfluginu að flugvellinum skömmu síðar og fór utan í byggingu og brotnaði í tvo hluta við brotlendinguna.

Flugvélin, sem bar skráninguna ZS-BRV, og flaug fyrst árið 1954, var máluð í litum hollenska flugfélagsins Martins Air Charter sem síðar varð að Martinair.

Töluverður undirbúningur hafði verið í gangi fyrir ferjuflugið en kostnaðurinn við að ferja vélina til Hollands stefndi í 44 milljónir króna en mestur kostnaðurinn fór í varahluti þar sem þurfti að gera vélina upp fyrir flugið og þá þurfti að greiða fyrir flugumferðargjöld á leiðinni yfir Úganda, Zambíu, Súdan, Egyptaland, Ítalíu, Frakkland og Þýskaland.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga