flugfréttir

Flaug annað áætlunarflug þrátt fyrir mjög harða lendingu

- Skall harkalega niður eftir að hafa orðið fyrir vindhvörfum

11. júlí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 16:45

Bombardier Q400 flugvél Jazz (Air Canada Express)

Í ljós hefur komið að kanadíska flugfélagið Jazz flaug áætlunarflug með einni af Bombardier Q400 flugvélum félagsins skömmu eftir mjög harða lendingu sem varð til þess að skemmdir urðu á hjólastelli og klæðningu vélarinnar en félagið segir að það hafi ekki verið meðvitað um tjónið þar sem ekki var tilkynnt um það af flugmönnum.

Atvikið átti sér stað þann 9. nóvember í fyrra er vélin var í lendingu á Billy Bishop flugvellinum í Toronto eftir flug frá Montréal en rétt fyrir lendingu urðu vindhvörf þess valdandi að verulega dró úr flughraða hennar þegar vélin var yfir brautinni.

Við það ákvað annar flugmaðurinn að auka aflið á hreyflana en þegar hjólin snertu brautina gerðu önnur vindhvörf sem varð til þess að vélin lyftist af brautinni en þá var flugmaðurinn búinn að draga af aflið.

Þegar vindurinn datt niður var ekki nægilegt afl á hreyflunum til að halda vélinni uppi og skall hún því harkalega niður á brautina með lóðrétt álagsmark upp á 5.7g.

Álagið fór því yfir þau mörk sem framleiðandinn gefur út fyrir lendingarbúnaðinn á Bombardier Q400 sem miðast við 5.5g.

Flugfélagið var ekki meðvitað um að vélin hefði orðið fyrir tjóni
deginum áður

Höggið var það mikið að rofi fór sjálfkrafa í gang sem virkjar upptökuham á flugrita vélarinnar sem gerist aðeins ef um flugslys sé að ræða en flugmennirnir fengu viðvörun um vandamál með flugrita vélarinnar í kjölfar lendingarinnar.

Flugvirkjar töldu ekki ástæðu til að aðhafast frekar

Flugmennirnir höfðu samband við viðhaldsdeild flugfélagsins eftir að þeir voru komnir að flugstöðinni en þeir töldu að viðvörunarljósið varðandi flugritann hefði ekkert með lendingarbúnaðinn að gera.

Flugmennirnir voru ekki vissir hvort að lendinging teldist sem „hörð lending“ sem þyrfti að tilkynna sérstaklega en ef svo hefði verið þá þurftu flugvirkjar að mæta á staðinn sem hefði seinkað brottför vélarinnar frá Billy Bishop flugvellinum og sennilega hefði fluginu verð aflýst.

Flugmennirnir ákváðu að skoða lendingarbúnaðinn sjálfur og urðu þeir ekki varir við neitt óeðlilegt og ákváðu að fljúga vélinni aftur til baka til Montréal.

Við skoðun í Montréal daginn eftir kom hinsvegar í ljós að skemmdir voru á hægra hjólastelli auk þess sem að ytri klæðning vélarinnar við farþegaglugganna var bogin með beyglum á yfirlagi.

Jazz hefur látið áhafnir gangast undir sérstakt námskeið varðandi harðar lendingar og hvernig á að leggja mat á að greina harðar lendingar, sem þarf að tilkynna sérstaklega um, frá venjulegum lendingum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga