flugfréttir
Yfir 300 lítrar af eldsneyti láku frá þyrlu í frakt á Boeing 747-8F
- Slökkvilið sagði að mikil hætta hefði verið á ferðum
Boeing 747-8F fraktþotan frá Cargolux sem um ræðir á flugvellinum í Glasgow þann 30. mars í fyrra
Mikil hætta skapaðist er eldsneytisleki kom upp í þyrlu sem verið var að flytja með júmbó-fraktþotu Cargolux frá Texas til Þýskalands í mars árið 2017.
Þyrlunni, sem var af gerðinni Bell 412EP, var komið fyrir í Boeing 747-8F fraktþotu Cargolux á flugvellinum í Houston
þann 30. mars í fyrra og var förinni heitið til Lúxemborg með stuttu stoppi í Glasgow.
Það var flugvallarstarfsfólk í Glasgow sem uppgötvaði að eldsneyti hefðu lekið frá tönkum þyrlunnar um borð í fraktþotunni
og kom í ljós að mikið magn eldsneytis hafði lekið niður á þilfarið, áfram niður á neðra dekkið og einnig ofan
í rafeindaarýmið sem hýsir ýmisskonar stjórntækja- og rafmagnskerfi flugvélarinnar.
Slökkvilið, sem kom á staðinn, mat aðstæðurnar sem svo að um mikla sprengihættu hafi verið að ræða og þykir mildi
að ekki breiddist út eldur.
Alls voru um 322 lítrar af eldsneyti sem láku frá þyrlunni en þyrlan hafði verið geymd í tvo mánuði í Houston og án
vandræða og var ekki vart við lekann á þeim tíma.
Rannsakendur telja að ekki hafi verið gengið rétt frá þyrlunni
fyrir fluttninginn og sennilega hafi þrýstingurinn í fraktrýminu komið lekanum af stað.
Eldsneytið var látið leka niður úr flugvélinni á mörgum stöðum
Það var fyrirtækið Agrarflug Helilift í Þýskalandi sem hafði keypt þyrluna frá bandarísku fyrirtæki en seljandinn
gaf sér ekki tíma til þess að fjarlægja eldsneytið úr þyrlunni fyrir flutninginn en kaupandinn hafði gert ráð fyrir því
í samræmi við reglugerðir um flutning á þyrlum með fraktflugi.
Fram kemur að Boeing 747-8F fraktþotan, sem flutti þyrluna, varð fyrir mikilli óhreinkun af eldsneyti sem lak á gólfið, en einnig fór eldsneyti á loftklæðningar og á veggi og þurfti einnig að skipta um einangrun í frakrýminu. Þá þurfti einnig að taka allt rafeindarýmið
í gegn vegna lekans.
Þotan var ferjuð til baka tveimur vikum síðar þar sem hún gekkst undir skoðun svo hægt væri að endurvekja
aftur lofthæfnisvottun flugvélarinnar áður en hún fór aftur í umferð þann 1. maí 2017.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.