flugfréttir
Boeing tryggir sér einkaleyfið fyrir tölunni 797
Boeing sótti upphaflega um einkaleyfið árið 2016
Talan 797 er ekki mikið þekkt númer fyrir utan að hafa verið þriðja seinasta árið á 8. öld samkvæmt júlíska tímatalinu en þá er hún einnig eina talan í 7X7 röðinni sem ekki hefur verið notuð af Boeing við framleiðslu á farþegaþotum.
Boeing hefur nú tryggt sér einkaréttinn á tölunni „797“ sem talið er vera vegna framleiðslu á fyrirhuguðu framtíðarþotunni
sem framleiðandinn hefur ekki enn tengt við Boeing 797.
Boeing hefur hingað til einungis talað um „New Midsize Aircraft“ sem hefur verið skammstafað sem NMA en nokkur
flugfélög hafa sagt að Boeing hafi kynnt nýju þotuna fyrir þeim sem Boeing 797.
Umsóknin um einkaleyfið fyrir 797 var send frá skrifstofum Boeing í Seal Beach í Kaliforníu til
Vörumerkja-og hönnunarskrifstofu Evrópusambandsins (EUIPO).
Boeing hefur lýst því yfir að mögulega verði tilkynnt á þessu ári um nýja farþegaþotutegund og hefur verið sagt
að Boeing ætli að kynna Boeing 797 formlega til leiks og ýta verkefninu úr vör á Farnborough-flugsýningunni sem hefst eftir helgi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.