flugfréttir

Embraer E2 lendir í fyrsta sinn á London City

13. júlí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 16:37

Embraer E190-E2 þotan á London City flugvellinum í dag

Nýja E190-E2 þotan frá Embraer lenti í fyrsta sinn á London City flugvellinum í dag á leið sinni á Farnborough-flugsýninguna en flugvélin mun henta mjög vel fyrir flug um London City þar sem sá flugvöllur krefst bratts aðflugs sem E2-þotan mun ráða auðveldlega við.

Þotan er tilraunarþota Emrbaer og hefur verið málað brosandi hákarlamunnur framan á nefið sem á að endurspegla „vígalega markaðsherferð" framleiðandans á þotunni sem miklar vonir eru bundnar við.

„Þessi flugvél er bara sniðin fyrir London City og er það stórt tækifæri fyrir okkur að fljúga henni til Bretlands á Farnborough-sýninguna“, segir Arjan Meijer, markaðsstjóri Embraer.

Slökkviliðið á London City-flugvellinum myndar heiðursboga

Hefðbundnar Embraer-þotur hafa flogið um London City flugvöll í tæpan áratug eða frá árinu 2009 en 60% af öllum brottförum og komum um flugvöllinn, sem staðsettur er í miðju fjármálahverfi Lundúna, eru flugvélar af gerðinni Embraer.

„Embraer E2 býður upp á gríðarlega möguleika fyrir London City er kemur að hávaðamildun, minni útblæstri og meiri sparneytni“, segir Richard Hill, framkvæmdarstjóri flugvallarins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga