flugfréttir

Riftun á kjarnorkusamkomulagi byr undir vængi Sukhoi

16. júlí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 14:22

Sukhoi Superjet 100 þotan

Ákvörðun Bandaríkjanna um að draga til baka kjarnorkusamkomulagið sem gert var við Írani er vatn á myllu rússneska flugvélaframleiðandans Sukhoi.

Evrópskum fyrirtækjum er enn frjálst að standa við kjarnorkusamkomulagið sem gert var til að aflétta viðskiptabanni við Íran en þar sem viðskiptatengsl milli evrópskra framleiðanda og vestrænna birgja er flókið ferli er kemur að samkomulaginu þá eru ekki öll fyrirtæki sem ætla taka áhættuna á því að afhenda flugvélar til Íran og þar á meðal ATR framleiðandinn.

Rússar eru einnig aðili að samkomulagi um viðskiptaþvinganir á lönd á borð við Íran og Norður-Kóreu en það gildir þó ekki um Sukhoi Superjet 100 þar sem framleiðslan á þeirri þotu er af öðru tagi og nær ekki til samkomulagsins.

Bandaríkin gáfu evrópskum fyrirtækjum frest upp á nokkra mánuði til þess að ljúka afhendingum á þeim vörum sem búið væri að semja um sölu á til Írans en Airbus sagði að það væri of stuttur tími fyrir flugvélaframleiðendur og sé því óséð hvort að Airbus geti afhent fleiri þotur til Írans.

Iran Air gerði samkomulag við Airbus í desember árið 2016 um kaup á yfir 100 nýju farþegaþotum og er auðséð að ekki næst að afhenda þær þotur til flugfélaga í Íran og þá hefur Boeing lýst því yfir að framleiðandinn hefur misst leyfið til þess að selja þotur til landsins.

Embraer, Bombardier og Comac heyra einnig undir samkomulag Bandaríkjanna þar sem allar þær þotur eru samsettar úr íhlutum sem framleiddir eru í Bandaríkjunum og er hlutfallið yfir þau mörk sem leyfilegt er samkvæmt samkomulaginu.

Þetta gerir það að verkum að Sukhoi Superjet 100 þotan er eina farþegaþotan á markaðnum sem írönsk flugfélög geta fest kaup á til þess að endurnýja flugflotann sinn eftir að kjarnorkusamkomulagið var afturkallað.

Svo gæti farið að Íranir myndu panta allt að 100 þotur frá Sukhoi sem yrði nóg til þess að mæta eftirspurninni bæði í innanlandsflugi og millilandaflugi.

Iran Aseman Airlines hefur nú þegar pantað tuttugu Sukhoi Superjet 100 þotur og þá hefur Iran Air Tours einnig pantað tuttugu þotur en þær pantanir bárust áður en Bandaríkjastjórn afturkallaði samkomulagið í maí í vor.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga