flugfréttir
Farnborough: VietJetAir pantar 100 Boeing 737 MAX þotur
Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX í litum VietJetAir
Flugfélagið VietJetAir í Víetnam hefur gert samkomulag við Boeing um kaup á 100 farþegaþotum af gerðinni Boeing 737 MAX.
Tilkynnt var um kaupin í morgun á Farnborough-flugsýningunni og er um samkomulag að ræða en pöntunin
samastendur af 80 þotum af gerðinni Boeing 737 MAX 10 og tuttugu Boeing 737 MAX 8 þotum.
VietJetAir hefur í dag nær eingöngu Airbus-þotur í flota sínum sem samanstendur af 55 þotum af gerðinni
Airbus A320 og Airbus A321 og þá hefur félagið fengið fyrstu Airbus A321neo þotuna afhenta.
Félagið hefur áður pantað þotur frá Boeing en VietJetAir á von á 100 þotum af gerðinni Boeing 737 MAX 200
sem er sérstök útgáfa af 737 MAX sem framleidd er fyrir lágfargjaldafélög.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.