flugfréttir

Flugakademía Keilis opnar starfsstöð á Spáni

- Verkleg kennsla í góðu veðri nánast alla daga ársins

19. júlí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 13:27

Undirbúningur fyrir opnun starfsstöðvar Keilis á Spáni, sem eru staðsettar í bænum Sabadell rétt fyrir utan Barcelona, hefur staðið í nokkurn tíma.

Flugakademía Keilis hefur opnað flugskólaútibú á Spáni en í tilkynningu frá Flugakademíunni kemur fram að til að mæta auknum áhuga og tryggja að skólinn geti kennt verklegt flugnám allt árið um kring hefur verið ákveðið að opna starfsstöð rétt fyrir utan Barcelona.

Keilir er þannig fyrsti flugskóli landsins til að halda úti verklegu flugnámi í tveimur löndum en fyrstu nemendur skólans fóru utan fyrr í sumar og una sér vel enda kjöraðstæður til flugs flesta daga ársins.

Að jafnaði verða um ellefu nemendur Keilis í starfsstöðinni í tvo mánuði í senn og er stefnt að því að nemendur skólans fljúgi árlega um 3.000 klukkutíma á Spáni.

Starfsstöð Keilis er á flugvellinum í Sabadell á Spáni

Undirbúningur fyrir opnun starfsstöðvar Keilis á Spáni, sem eru staðsettar í bænum Sabadell, rétt fyrir utan Barcelona, hefur staðið í nokkurn tíma en með þessu er skólinn betur settur til að geta boðið upp á hágæða atvinnuflugnám á einungis 16-18 mánuðum.

Stórt skref fyrir skólann

Samkvæmt Snorra Pál Snorrasyni, skólastjóra Flugakademíu Keilis, er þetta stórt skref fyrir skólann enda er með þessu verið að sýna fram á að hægt sé að yfirfæra verklega þjálfun og gæðaferla Keilis á aðrar starfsstöðvar víðsvegar í Evrópu. Þá hafa nemendur möguleika á því að auka færni sína og þekkingu á alþjóðlegum vettvangi sem mikilvægur þáttur í þjálfun flugmanna.

Flugiðnaðurinn er í örum og hröðum vexti á alþjóðavísu og er mikil eftirspurn eftir atvinnuflugmönnum um allan heim en stytting námstíma til atvinnuflugmannsprófs, líkt og Flugakademía Keilis hefur unnið að, er því mikilvægur áfangi fyrir bæði flugnema og flugiðnaðinn sjálfan.

„Flestir nemendur okkar hafa fengið atvinnutilboð áður en þeir hafa lokið námi hjá okkur, bæði frá innlendum og erlendum flugfélögum, þannig að við höfum einsett okkur að gera þeim kleift að komast á vinnumarkaðinn eins fljótt og mögulegt er“ segir Rúnar Árnason, forstöðumaður Flugakademíu Keilis.

Mikil ásókn í flugnám

Á þriðja hundrað nemendur leggja stund á atvinnuflugnám í Flugakademíu Keilis. Aukin ásókn hefur verið í námið á undanförnum misserum og er fullbókað í bæði samtvinnað og áfangaskipt atvinnuflugnám.

Vegna aukinna umsvifa festi Flugakademía Keilis kaup á fjórum nýjum DA40 kennsluflugvélum á árinu og hefur skólinn nú til umráða alls fjórtán flugvélar frá Diamond flugvélaframleiðandanum: átta DA40 fjögurra sæta vélar, fimm DA20 tveggja sæta vélar og eina tveggja hreyfja DA42 kennsluvél.

Fyrstu nemendur skólans fóru utan fyrr í sumar og una sér vel, enda kjöraðstæður til flugs flesta daga ársins

DA40 flugvélar Keilis eru með tæknivæddustu kennsluvélum á landinu, búnar fullkomnum blindflugsbúnaði, stórum tölvuskjám og nútíma flugmælitækjum. Með komu nýju vélanna hefur skólinn yfir að ráða einn nýstárlegasta og yngsta flota kennsluvéla í Evrópu. Fyrirhugað er að fyrstu tvær vélarnar verði afhentar í mars næstkomandi og þær seinni í lok maí.

Þá tók Flugakademían nýverið í notkun fullkominn flughermi frá Diamond fyrir þjálfun á tveggja hreyfla DA42 flugvél skólans sem hefur aukið verulega við þjálfunarmöguleika atvinnuflugnema við skólann og bætist hann við núverandi Redbird hreyfanlegan flughermi skólans.

Vegna mikillar aðsóknar í flugnám er áhugasömum bent á að senda inn námsumsókn sem fyrst.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga