flugfréttir
EasyJet fær styrk frá Kanarí fyrir flugi til La Palma
Airbus A320neo þota easyJet á Tenerife
EasyJet hefur fengið styrk frá sjálfstæðisstjórninni á Kanaríeyjum upp á 20 milljónir króna fyrir flugleiðinni milli Basel í Sviss og Santa Cruz de La Palma.
La Palma er fimmt stærsta eyjan í eyjaklasanum en easyJet flýgur ekki til La Palma eins og er þar sem flugáætlun félagsins miðast eingöngu við
Tenerife, Gran Canaria og Fuerteventura.
Mun færri erlend flugfélög fljúga til La Palma sem er ekki eins vinsæl meðal ferðamanna og Tenerife, Gran Canaria
og Fuerteventura og eru aðeins sex erlend flugfélög sem fljúga til eyjunnar allan ársins hring.
EasyJet mun fljúga a.m.k. einu sinni í viku til La Palma frá Basel með sætaframboð upp á 9.360 sæti á ári.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.