flugfréttir
Airbus íhugar að reisa flugvélaverksmiðju í Malasíu
Airbus A350 í lokasamsetningu í Toulouse
Airbus er að skoða þann möguleika á að opna fimmtu flugvélaverksmiðjurnar sínar í heiminum í Malasíu.
Airbus ætlar að hefja úttekt á hvort að Malasía sé fýsilegur kostur en sá staður sem kemur til greina
er Negeri Sembilan-hérað sem er rétt sunnan við Kuala Lumpur.
Doktor Mohamad Rafie Abd Malek, yfirmaður yfir nefnd sem fer fyrir mannauði, fjárfestingum, frumkvöðlastarfi, menntun
og iðnvæðingu í héraðinu segir að Airbus hafi náð samkomulagi á fundi með AirAsia um að rannsaka þennan kost
en AirAsia er einn stærsti viðskiptavinur Airbus í Asíu.
Um lokasamsetningarsal væri að ræða sem á ensku nefnist FAL sem stendur fyrir „Final Assembly Line“ en farþegaþotur Airbus eru í dag framleiddar í Toulouse, Hamborg, Tianjin í Kína og í Mobile í Alabama.
Fram kemur að Airbus muni á næstu 18 mánuðum rannsaka aðstæður og gera skipulagsáætlun varðandi
nýjar verksmiðjur í Malasíu og með möguleika á að reisa þjónustuverkstæði þar sem viðgerðir, skoðanir og yfirhalning
á hreyflum gæti farið fram.
Samkvæmt Tony Fernandes, framkvæmdarstjóra AirAsia, þá er aðaláherslan af hálfu Airbus það landsvæði sem kemur
til greina og sá fjöldi starfsmanna sem er tiltækir til að koma að verkefninu.
„Við áttum fund með Airbus og höfum rætt um að fá þá til að fjárfesta í Malasíu. Það
sem skiptir mestu máli fyrir þá er að fá rétta fólkið. Þannig að þetta er stórt tækifæri til að skapa mörg störf í hátækniiðnaði í landinu“, segir Fernandes.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.