flugfréttir
Airbus sér fram á þörf fyrir yfir 100 A220 þotur á ári
Airbus A220 þotan (CS300) í litum Airbus
Airbus telur að næg eftirspurn sé eftir nýju Airbus A220 þotunni sem framleiðandinn keypti af Bombardier og er talið að markaður sé fyrir framleiðslu á allt að 100 eintökum af vélinni á ári.
Harald Wilhelm, fjármálastjóri Airbus, tók fram á afkomukynningu Airbus að það væri augljóslega
alveg hægt að framleiða þessvegna yfir hundrað Airbus A220 þotur árlega án þess að taka fram hvenær
hægt væri að auka framleiðsluna upp í þann fjölda.
Tom Enders, framkvæmdarstjóri Airbus, tekur í sama streng og segir að enginn vafi sé á því
að þotan á eftir að njóta mikillar velgengni.
Ekki er enn ákveðið hvernig hægt verður að framleiða yfir 100 eintök af Airbus A220 á ári en sú framleiðsla
myndi skiptast niður á verksmiðjurnar í Mirabel í Kanada, þar sem vélin er núna framleidd, og fyrirhugaðra
verksmiðja sem til stendur að reisa í Mobile í Alabama árið 2020.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.