flugfréttir
Þota frá Aeroméxico fór út af braut í flugtaki í Mexíkó
- Allir um borð komust lífs af í flugslysi í borginni Durango
97 farþegar voru um borð og fjögurra manna áhöfn og komust allir lífs af
Flugslys átti sér stað í gærkvöldi í Mexíkó er farþegaþota frá mexíkóska flugfélaginu Aeroméxico Connect fór út af flugbraut í flugtaksbruni á Guadalupe Victoria flugvellinum í borginni Durango.
Þotan var af gerðinni Embraer ERJ-190 og var vélin í áætlunarflugi til Mexíkóborgar með 97 farþega og fjögurra
manna áhöfn innanborðs en slysið átti sér stað klukkan 20:15 að íslenskum tíma.
Fram kemur að flugmennirnir hafi ætlað að hætta við flugtakið í flugtaksbruninu en vélin fór út af brautinni og staðnæmdist
út í gróðurlendi fyrir aftan brautarendann þar sem hún varð alelda.
Slökkvilið að störfum á vettvangi
Fréttir um fjölda slasaðra eru á reiki en fjölmiðlar greina frá því að á þriðja tug hafi hlotið meiðsl á meðan
aðrir nefna hátt í 90 manns hafi slasast og voru flestir fluttir á sjúkrahús. Svo virðist vera hinsvegar sem að allir hafi sloppið á lífi úr slysinu
Fram kemur að mögulega hafi komið upp bilun í öðrum hreyflinum þegar þotan var að nálgast þann hraða sem hún átti að lyftast af brautinni en einnig er greint frá því að flugmennirnir hafi ætlað að hætta við flugtakið vegna slæms veðurs.
Samkvæmt veðurupplýsingum á flugvellinum þá gekk þrumurveður yfir er slysið átti sér stað með rigningu en
vindstyrkur var um þrír hnútur. Þrátt fyrir það þá taka mexíkósk yfirvöld það fram að flugmennirnir hafi ætlað að hætta við flugtakið vegna vindgusts.
Farþegar náðu að koma sér frá borði áður en vélin varð alelda en eldur kom upp í vélinni um fjórum mínútum eftir
að hún staðnæmdist þar sem hún fór út af brautinni.
Mexíkósi fjölmiðillinn El Financiero segir að talið sé að flugvélin hafi rekist á eittthvað þegar hún var í flugtaki en
að öðru leyti er orsök slyssins ókunn og er það nú til rannsóknar.
Embraer ERJ-190 þotan sem um ræðir bar skráninguna XA-GAL
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.