flugfréttir
Rafmagnsflugvélar spennandi kostur en ennþá er langt í land
- Huga þarf fyrst að innviðum, tækni og reglugerðum fyrir rafmagnsflug
Pierre Duval á morgunfundinum í morgun í húsakynnum Geirfugls í Fluggörðum
Flugvélar, sem ganga fyrir rafmagni, er spennandi kostur sem vekur mikla athygli víða í flugheiminum en þrátt fyrir það þá er enn mikið vatn sem á eftir að renna til sjávar þangað til fólk á eftir að sjá rafmangsflugvélar daglega á flugi.
Þetta kom meðal annars fram í kynningu Pierre Duval á morgunfundi sem fram fór hjá Flugfélaginu Geirfugli á vegum
Flugmálafélags Íslands en Duval er einn fremsti sérfræðingur heims er kemur að þróun rafmagnsflugvéla.
Flugvél sem gengur fyrir rafmagni myndi gera einkaflugið mun ódýrara samanborið við hefðbundnar flugvélar sem ganga fyrir eldsneyti og er Ísland í sérstöðu í heiminum er kemur að framleiðslu á raforku.
Duval kynnti meðal annars hvaða forsendur þurfa að vera til staðar til að gera rafmagnsflug daglegt brauð en
það sem framleiðendur standa frammi fyrir í dag er hver eftirspurnin er í raun og veru og svo þær reglugerðir sem enn hafa ekki verið samdar
varðandi flugvélar sem ganga fyrir raforku.
Í dag eru nokkrir aðilar sem framleiða rafmagnsflugvélar en þó í fáum upplögum en meðal þeirra er fyrirtækið Pipistrel í Slóveníu sem hefur í nokkur ár framleitt rafmangsflugvélar.
Duval kynnti gestum á fundinum fyrir því hver staðan væri í dag í rafmagnsfluginu og fór yfir þau atriði sem þurfa
að vera fyrir hendi svo rafmagnsflug geti orðið algengur fararmáti.
Sem dæmi þá er enn mikil þróun í gangi í framleiðslu á rafhlöðum sem er sífellt að breytast en til þess að flugmaður ætti að geta flogið eðlilegt flug þá
þyrfti hann að hafa þrjár rafhlöður; eina sem væri í hleðslu, eina í notkun og þá þriðju sem væri í kælingu eftir
seinustu notkun þar sem slíkar rafhlöður myndu hitna mjög mikið.
Duval kom meðal annars að E-FAN rafmagnsflugvélinni frá Airbus
Þá ræddi Duval um að fæstir flugvellir hafa í dag aðstöðu til þess að hægt sé að hlaða flugvélar og sé það eitthvað
sem þyrfti að innleiða áður en rafmagnsflug myndi ryðja sér til rúms, breyta rafmagnsinntaki á flugvöllum
og gera ráð fyrir fjölda stæða fyrir slíkar flugvélar svo hægt væri að komast í hleðslu.
„Uber, Amazon og Google „þykjast“ öll vera á leiðinni með rafmagnsflugvél“
Fram kom að rafmagnsflug hafi að undanförnu heillað mörg af stærstu tæknifyrirtækjum
heims sem hafa stokkið til og lýst því yfir að þau ætli að koma með á markaðinn nýja tegund af samgöngumáta í lofti
fyrir almenning á borð við Uber, Amazon og Google án þess að kynna sér nánar þá hlið sem snýr að reglugerðum
í flugi og samþykktum frá flugmálayfirvöldum.
UBER er meðal þeirra fyrirtækja sem stefnir á að vera komið með fljúgandi leigubíla innan fárra ára
Duval nefndi að mörg tölvufyrirtæki í Silikon-dalnum í Kaliforníu séu heilluð af rafmangsflugi og telja sig búa yfir
því hugviti sem til þarf svo hægt sé að framleiða einkaflugvél sem almenningur gæti notað til þess að komast til
og frá vinnu en án þess að taka með inn í reikninginn það plássleysi sem það myndi skapa í lofthelginni og þann
tíma sem færi í að geta út vottun fyrir slíku flugi.
Dæmi eru einnig um fyrirtæki sem vinna að þróun á flugbílum fyrir almenning sem fjölskyldur eiga m.a. að nota til að komast fljúgandi til og frá vinnu og hafa sum tekið fram að einkaflugmannspróf sé ekki nauðsynlegt en slíkt hefur vakið upp stórar spurningar er kemur að öryggi og lofthelgi.
Að sögn Duval þá á hann von á því að aðeins séu fjögur ár í að við eigum eftir að sjá einhverjar rafmangsflugvélar sem verða notaðar sem flugleigubílar og yrði það þá aðeins á milli ákveðinna staða en ekki milli heimahúsa í venjulegum hverfum.
Farþegaflug með rafmangsflugvél möguleiki árið 2030
Rafmagnsflug með frakt gæti orðið að veruleika árið 2025, rafmangs-einkaflug árið 2027 og þá gæti fyrsta farþegaflugið
með rafmagnsflugvélum með 9 farþega átt sér mögulega stað árið 2030 og með allt að tuttugu farþega frá árinu 2030 til ársins
2040.
Duval nefnir að eftirspurn og markaðurinn sé stórt atriði sem þarf að vera á hreinu fyrir framleiðendur þar sem aðeins fámennur hópur fólks eru flugmenn sem er ein ástæða þess að flugvélar eru almennt dýrar og mun dýrari en bílar sem seljast í hundruð þúsundum eintaka á ári. Út frá viðskiptahugmyndinni sé því næst hægt að meta
eftirspurnina og því næst hægt að ákveða verðlagningu á rafmagnsflugvél.
Duval segir að þar sem þessum spurningum sé ósvarað, og ekki sé komin nein almenn umgjörð, innviðir né
reglugerðir um rafmangsflugvélar, verði það til þess að hugmyndir margra fyrirtækja um að hanna og þróa sína eigin rafmangsflugvél verði að engu þar sem þau taka ekki með inn í reikninginn forsendur á borð við aðkomu flugmálayfirvalda.
Pierre hefur víðtæka reynslu á sviði rafmagnsflugvéla og hefur m.a. stýrt verkefninu sem snýr að rafmagnsflugvélinni E-FAN frá Airbus. Hann er þaulreyndur flugmaður á flestar gerðir flugvéla, starfaði um árabil sem flugblaðamaður og er nú forseti umhverfsnefndar Alþjóða flugmálafélagsins, FAI.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.