flugfréttir
Bombardier fær leyfi fyrir 90 sæta útgáfu af Q400
Bombardier Q400 flugvél í samsetningu
Flugmálayfirvöld í Kanada hafa gefið Bombardier leyfi til þess að útfæra Dash 8 Q400 flugvélina með sætum fyrir 90 farþega sem væri einskonar lágfargjaldarútgáfa af vélinni.
Með því getur Bombardier afhent 90 sæta Q400 flugvélar til indverska lágfargjaldafélagsins SpiceJet
sem hefur pantað 25 eintök af Bombardier Dash 8 Q400 NG.
Hefðbundin útgáfa af Q400 kemur með sæti fyrir 78 farþega en Bombardier segir að von sé á því að
fleiri flugfélög muni panta 90 sæta útgáfuna.
Bombardier kynnti Q400 flugvélina með 90 sætum í febrúar árið 2016 en framleiðandinn segir að sum
flugfélög líti á Q400 sem hægfleyja flugvél en raunin er sú að vélin nær meiri farflugshraða upp á
allt að 360 kt sem er meiri hraði en margar
aðrar sambærilegar skrúfuvélar ná og er hún 25% hraðfleygari en ATR 72 skrúfuvélin.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.