flugfréttir

Verður hraðfleygasta eins hreyfils einkaflugvél í heimi

- Stefna á að fá vottun frá FAA fyrir E1000 flugvélinni fyrir áramót

7. ágúst 2018

|

Frétt skrifuð kl. 16:30

Fyrsta eintakið af Epic E1000 var tilbúið árið 2015 en um tilraunarflugvél er að ræða

Bandaríski flugvélaframleiðandinn Epic Aircraft mun á næstunni hefja fjöldaframleiðslu á fyrstu E1000 flugvélunum sem er eins hreyfils flugvél með skrúfuþotuhreyfli sem tekur fimm farþega og einn flugmann.

Epic Aircraft tilkynnti nýlega að prófanir með skrokk vélarinnar væru lokið og á framleiðandinn von á að fá vottun frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) fyrir fjöldaframleiðslu á næstunni en E1000 þotan flaug sitt fyrsta flug í desember árið 2015.

E1000 er smíðuð eingöngu úr koltrefjaplasti og er stefnt á að vélin verði hraðfleygasta eins hreyfils flugvél í heimi þegar hún kemur á markaðinn á næsta ári.

Flugvélin kemur með 1.825 hestafla mótor af gerðinni PT6-67A frá Pratt & Whitney og vegur hún tóm um 2 tonn er henni áætlað að geta flogið 1.650 nm með farflugshraða upp á 325 hnúta sem er 40 hnútum meiri hraði en Pilatus PC-12 flugvélin sem er ein sú hraðfleygasta í dag meðal eins hreyfils flugvéla.

Epic E1000 flugvélin er eingöngu smíðuð úr koltrefjaplasti

Nú þegar eru fyrstu fjögur eintökin farin að taka á sig mynd í verksmiðjum Epic Aircraft í bænum Bend í Oregon þar sem Epic Aircraft hefur höfuðstöðvar.

Hjá Epic Aircraft starfa um 250 manns og er fyrirtækið skuldlaust og stendur til að smíða átta til tólf E1000 flugvélar árið 2019 en talið er að markaður sé fyrir allt að 90 eintök af flugvél af þessari gerð í heiminum á næstu árum en Epic ætlar sér að geta smíðað fimmtíu eintök árlega á næstu árum.

Alls eru komnar pantanir í 85 eintök af flugvélinni en aðeins ein tilraunaflugvél hefur verið smíðuð og er stefnt á að hefja fjöldaframleiðslu síðar á þessu ári.

Verðið á einni Epic E1000 flugvél eru 314 milljónir króna og munu afhendingar hefjast á fyrri helmings ársins 2019.

Stjórnklefinn í Epic E1000 flugvélinni kemur með Garmin G950 stjórntækjum







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga