flugfréttir

Flugstjóri ósáttur við að láta af störfum 65 ára og höfðar mál

- Segir reglugerðina úrelda í ljósi framfara í læknavísindum

13. ágúst 2018

|

Frétt skrifuð kl. 12:17

Wayne Bayle lét af störfum sl. janúar hjá TUI Airways eftir að hafa flogið atvinnuflug frá árinu 1976

Flugstjóri einn í Bretlandi ætlar að freista þess að lögum verði breytt sem kveða á um að flugmenn verði að láta af störfum í atvinnuflugi þegar þeir ná 65 ára aldri.

Wayne Bayle þurfti að láta af störfum í janúar sl. hjá TUI Airways þar sem hann hafði náð starfslokaaldri eftir að hafa flogið alls 26.000 flugtíma á sínum flugferil.

Bayle hefur fengið lögfræðinga til þess að hefja dómsmeðferð þar sem hann ætlar að freista þess að reglugerð um starfslokaaldur verði breytt í Bretlandi í ljósi þess að ekkert aldurstakmark er í atvinnufluginu í Kanada og í Ástralíu svo lengi sem flugmenn uppfylla fyrsta flokks læknisskoðun.

Í málsgögnum verður farið fram á að reglugerðinni um starfslokaaldur verði breytt þar sem um brot á löggjöfinni Equality Act 2010 er að ræða sem kveður á um jafnfrétti og bann við mismunun.

Þá segir Bayle að framfarir í læknavísindum og ítarlegri fluglæknaskoðanir geri reglugerðina úrlenda sem kveður á um að sami starfslokaaldur gildi fyrir alla atvinnuflugmenn.

Wayne Bayle flaug Dreamliner-þotu hjá TUI Airways en þurfti að hætta í janúar þar sem hann hafði náð 65 ára aldri

Samkvæmt reglugerð flugmálayfirvalda í Bretlandi (CAA) þá verða flugmenn, sem náð hafa 60 ára aldri, að fljúga með yngri flugmanni sem er a.m.k. 59 ára eða yngri.

Líkamlegt form óháð aldri

„Að hafa blátt bann við því að atvinnuflugmaður fljúgi áfram eftir 65 ára afmælið er frekar undarleg krafa þar sem ekki er tekið með í reikninginn líkamlegt form hjá viðkomandi flugmanni né þær framfarir sem hafa orðið í læknavísindunum“, segir Simon Elcock, lögfræðingur hjá DMH Stallard.

Bayle hóf fyrst störf hjá British Island Airways árið 1976 þar sem hann flaug 50 sæta skrúfuflugvél áður en hann fór yfir á þotu hjá Air Europe þar sem hann flaug m.a. til Ameríku og til Asíu en hann hóf störf hjá TUI árið 2000.

Bayle er ekki sáttur við starfslokaaldurinn og stefnir á að fljúga fram á áttræðisaldur. „Það eru flugmenn í Ástralíu sem eru að fljúga sem hafa næstum því náð 80 ára aldri“, segir Bayle.

Lögfræðingar Bayle segja að hann hafi alltaf uppfyllt 1. flokks fluglæknisskoðun en hann fór seinast í skoðun rétt fyrir 65 ára afmælið sitt og voru niðurstöðurnar úr skoðuninni vel yfir meðaltalið m.a.v aðra flugmenn sem eru á svipuðum aldri og Bayle.

„Það er einnig mikill ávinningur af því að hafa mjög reynda flugmenn við stjórnvölin og að breyta reglugerðinni með 65 ára starfslokaaldurinn væri einnig lausn við þeim skorti á flugmönnum sem blasir við breskum flugfélögum og þá sérstaklega á þjálfunarflugstjórum“, segir Bayle.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga