flugfréttir
Fjórða hver flugvél kyrrsett vegna skorts á varahlutum
Flugmenn Air India hafa lýst yfir miklum áhyggjum varðandi stöðuna sem er komin upp hjá félaginu
Næstum fjórða hver flugvél í flota indverska flugfélagsins Air India hefur verið kyrrsett þar sem ekki fást varahlutir í vélarnar.
Þetta er haft eftir nokkrum flugmönnum félagsins sem segja að vandamálið sé farið að hafa gríðarleg áhrif á Air India
en að sögn þeirra þá er orsökin skortur á fé til þess að kaupa varahluti.
Air India hefur 118 þotur í flota sínum en fram kemur að 23% af öllum flugvélunum séu úr umferð tímabundið vegna skorts á varahlutum og eykst sífellt fjöldi þeirra flugferða sem félagið þarf að aflýsa á hverjum degi.
Félag indverska atvinnuflugmanna (ICPA) hefur lýst yfir áhyggjum sínum vegna stöðunnar en talsmaður Air India undrar sig á því
hvers vegna flugmenn Air India séu að fara með þetta í fjölmiðla í stað þess að ræða þetta við stjórn félagsins.
ICPA segir að af þeim tuttugu Airbus A321 þotum þá séu að eins 12 af þeim í daglegum rekstri eins og staðan er núna en
þær vélar eru burðarásinn í innanlandsflugi félagsins.
Þá hefur Air India fimmtán Boeing 777 þotur í flotanum en fimm af þeim eru inni í flugskýli og tvær af 26 Dreamliner-þotum
félagsins eru einnig kyrrsettar vegna varahlutaskorts.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.