flugfréttir
Hefðu átt að hætta við lendingu á Schiphol
- Boeing 747-8F þota lenti of snemma og rákst utan í flugbrautarljós
Atvikið átti sér stað á Schiphol-flugvellinum í Amsterdam þann 13. janúar árið 2017
Flugmálayfirvöld í Hollandi hafa komist að þeirri niðurstöðu að flugmenn á Boeing 747-8F fraktþotu frá flugfélaginu AirBridgeCargo hefðu átt að hætt við lendingu og fara í fráflug á Schiphol-flugvellinum í Amsterdam þann 13. janúar árið 2017.
Júmbó-fraktþotan lenti of snemma á brautinni eða um 300 metrum fyrir framan þann stað þar sem hún hefði í fyrsta lagi
átt að snerta brautina.
Í staðinn lenti þotan við brautarendann og rakst með hjólastell í flugbrautarljós auk þess sem önnur aðflugsljósamöstur
snertu vængina með þeim afleiðingum að rispur komu undir þá.
Rannsakendur flugslysa komust að því að flugferill vélarinnar hafi verið of hár er sjálfstýringin var aftengd í 700 feta hæð
og varð lækkunarhraði vélarinnar því of mikill.
Fram kemur að aðflugið sjálft hafi verið stöðugt en vegna snöggrar breytingar er sjálfstýringin var aftengt komu tvær
viðvaranir og þar á meðal ein vegna lækkunarhraðans sem hafði aukist í yfir 1.000 fet á mínútu rétt fyrir lendingu.
Í skýrslu segir að flugmennirnir hefðu átt á þessum tímapunkti að hætta við lendinguna en í skýrslatöku sagði flugstjórinn
að ekki hefði verið neinn tími til þess að bregðast við þar sem vélin var gott sem kominn inn á brautina.
Flugmennirnir náðu að draga úr lækkunarhraðanum upp í 500 fet á mínútu en júmbó-þotan snerti brautina með
þyngdarhröðun upp á 1.76 G en skoppaði og skall aftur ofan í brautina með þyngdarhröðun upp á 1.84 G.
Flugvélin var að koma frá Hong Kong með viðkomu í Novosibirsk og kemur fram að fjórir flugmenn hafi verið um borð
og þar af þrír í stjórnklefanum en þeir höfðu verið á vakt í 14 klukkustundir.
Þá segir að mjög stíf norðan átt hafi verið er þeir lentu á Schiphol með vindstyrk upp á 26 hnúta og allt að 38 kt í mestu hviðunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.