flugfréttir

Keflavíkurflugvöllur í 9. sæti yfir áfangastaði frá Köben í júlí

- Fleiri flugu frá CPH til Keflavíkur heldur en til Berlínar

14. ágúst 2018

|

Frétt skrifuð kl. 14:25

Boeing 757 þota Icelandair á flugvellinum í Kaupmannahöfn

Farþegamet var slegið í júlí á flugvellinum í Kaupmannahöfn þegar yfir 3.1 milljón farþega fór um völlinn en á lista yfir vinsælustu borgirnar sem flestir ferðuðust til þá var Reykjavík á topp 10 listanum.

Þetta samsvarar 101.540 farþegum sem fóru um CPH á hverjum degi í júní en farþegamet hefur verið slegið á flugvellinum í hverjum einasta mánuði frá áramótum og verður árið 2018 því besta ár í sögu vallarins sem opnaði fyrst árið 1925.

Keflavíkurflugvöllur var í 9. sæti á lista yfir þá flugvelli sem flestir farþegar flugu til í mánuðinum en alls voru 69.268 sem flugu á milli Kaupmannahafnar og Keflavíkur í júlí.

Það samsvarar því að 2.234 farþegar hafi ferðast á milli Kaupmannahafnar og Keflavíkur á dag í júlí en þrjú flugfélög fljúga til Köben frá Íslandi sem eru Icelandair, WOW air og SAS.

69.268 farþegar flugu milli Köben og Keflavíkur í júlí

„Júlí hefur verið stærsti sumarmánuður í sögu Kaupmannahafnarflugvallarins með fleiri en 3.1 milljón farþega sem er aukning upp á 4,5 prósent. Þannig það hefur verið nóg að gera í flugstöðinni. Í 19 daga í júlí voru yfir 100.000 farþegar sem fóru um völlinn“, segir Thomas Woldbye, framkvæmdarstjóri flugvallarins.

Áfangastaðir á Spáni hafa verið meðal þeirra vinsælustu meðal Dana en þangað ferðuðust alls 309.555 farþegar í júlí frá Kaupmannahöfn sem jafngildir því að 1 af hverjum 10 farþegum, sem fóru um flugvöllinn, voru á leið til Spánar sem var vinsælasta landið sem flogið var til.

London er vinsælasti áfangastaðurinn frá Köben með 203.000 farþega í júlí en á eftir komu nágrannaborgirnar á hinum Norðurlöndunum þremur, Osló, Stokkhólmur og svo Helsinki í 4. sæti.

Því næst kemur Amsterdam í 5. sæti, París í því sjötta og Mallorca og Malaga þar á eftir en Keflavíkurflugvöllur kemur þar næst í 9. sæti.

Voru því fleiri farþegar sem flugu til Keflavíkur frá Kaupmannahöfn heldur en til Berlínar sem kom í 10. sæti á listanum.

Þrátt fyrir þetta voru færri farþegar sem flugu milli Keflavíkur frá Kaupmannahöfn í júlí á þessu ári þar sem 72.628 ferðuðust til milli Köben og Íslands í fyrra samanborðið við 69.268 farþega á þessu ári.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga