flugfréttir
Fyrsta HondaJet Elite afhent
Honda Aircraft kynnti HondaJet Elite í maí á þessu ári
Honda Aircraft hefur afhent fyrstu HondaJet Elite einkaþotuna sem er ný uppfærsla af HondaJet þotunni sem kom fyrst á markaðinn árið 2015.
Fyrsta HondaJet Elite var afhent þann
3. ágúst til ónefnds viðskiptavinar í Bandaríkjunum en Honda Aircraft
kynnti Elite-útgáfuna í maí.
HondaJet Elite, sem kostar um 570 milljónir króna, kemur með viðbótareldsneytistanki sem eykur flugdrægi þotunnar
um 230 mílur, hljóðlátara farþegarými sem inniheldur lítið eldhúsrými auk salernis með sætisbelti.
Þá kemur Elite-þotan með uppfærðum stjórnbúnaði með Garmin G3000 skjám sem kemur með ýmsum nýjungum
á borð við sjálfvirkt stöðugleikakerfi og ofrisvörn.
HondaJet Elite hefur fengið vottun frá flugmálayfirvöldum í Bandaríkjunum (FAA) og frá EASA í Evrópu en beðið
er nú eftir vottun frá flugmálayfirvöldum í Japan.
Honda Aircraft hefur í dag afhent 85 eintök af HondaJet og þar af hafa sautján eintök verið afhent á þessu ári.
Fyrsta Elite-útgáfan af HondaJet var afhent þann 3. ágúst
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.