flugfréttir

Stal einkaþotu og flaug henni vísvitandi á húsið sitt

- Átti í rifrildi við eiginkonu sína fyrr um kvöldið

14. ágúst 2018

|

Frétt skrifuð kl. 15:50

Heimili flugmannsins og flak vélarinnar í innkeyrslunni í bænum Payson

Flugmaður lést er hann flaug einkaþotu á húsið sitt í bænum Payson í Utah í Bandaríkjunum aðfaranótt mánudagsins þar sem hann bjó ásamt fjölskyldu sinni.

Lögreglan í Utah segir að flugmaðurinn var 47 ára gamall og hafi hann látist er hann brotlenti þotunni en tveir aðrir í fjölskyldu hans, eiginkona hans og sonur, voru heima en þau sakaði ekki.

Fram kemur að einkaþotan hafi verið af gerðinni Cessna 525 Citation Jet og hét flugmaðurinn Duane Youd og fór hann í loftið á einkaþotunni frá flugvellinum í bænum Spanish Fork.

Tók Cessna 525 CitationJet einkaþotu ófrjálsri hendi

Greint er frá því að Youd hafi verið mjög reyndur flugmaður. Einkaþotan var ekki í hans eigu en hann hafði aðgang að henni í gegnum vinnuveitanda sinn.

Atvikið átti sér stað aðfaranótt mánudagsins

Lögreglu barst tilkynning um heimilisofbeldi á sunnudagskvöld þar sem Youd hafði lagt hendur á eiginkonu sína og mætti lögregla á staðinn og ráðlagði honum að halda heimilisfriðinn og haga sér vel en hann sagðist vera á förum, tók nokkrar eigur sínar og ók á brott á pallbíl.

Skömmu síðar var hann stöðvaður og handtekinn og vistaður í fangageymslu en nokkrum tímum síðar var hann látinn laus gegn tryggingargjaldi.

Youd hafði verið handtekinn nokkrum tímum áður vegna heimilisofbeldis

Tveimur klukkustundum síðar um nóttina barst lögreglu tilkynning um að maðurinn hefði flogið flugvél á húsið sitt og fjölskyldunnar. Töluverður eldur braust út og var flak vélarinnar og bílskúrinn alelda er slökkvilið mætti á staðinn en greiðlega gekk að slökkva eldinn.

Lögreglan í bænum og nágrannar telja að mikil mildi að ekki fór verr þar sem fjölmargir aðrir hefði getað legið í valnum í nærrliggjandi húsum.

Samkvæmt Aviation Safety Network kemur fram að Cessna CitationJet þotan var 23 ára gömul, smíðuð árið 1995, og var hún í eigu fyrirtækisins Vancon Holdings.

Ljósmynd sem tekin var af Duane Youd á lögreglustöðinni fyrr um kvöldið







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga