flugfréttir
Flugumferðarstjóra sagt upp störfum vegna atviks
Embraer E195 þota Montenegro Airlines á flugvellinum í Belgrade
Flugumferðarþjónustan í Serbíu og Svartfjallalandi (SMATSA) hefur vikið flugumferðarstjóra úr starfi sem starfaði í flugturninum á flugvellinum í Belgrade vegna atviks þar sem tvær flugvélar flugu of nálægt hvor annarri.
Um var að ræða einkaflugvél og farþegaþotu af gerðinni Embraer E195 frá Montenegro Airlines en í tilkynningu
frá flugumferðarstjórninni kemur fram að þrátt fyrir að flugvélarnar hafi farið of nálægt hvor annarri þá hafi atvikið
ekki verið eins alvarlegt og fjölmiðlar greindu frá.
Farið er fram á að flugumferðarstjórinn, sem var á vakt, verði sagt upp störfum tímabundið og atvikið rannsakað
og einnig skoðað hvort hann uppfylli kröfur til þess að sinna starfinu áfram.
Atvikið átti sér stað þann 24. júní sl. en fyrst var greint frá því á dögunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.