flugfréttir
Þrýstingur á að loka flugvellinum í Antwerpen
- Enn minni umferð um flugvöllinn í kjölfar samdráttar VLM Airlines
Frá flugvellinum í Antwerpen
Útlitið er ekki bjart fyrir flugvöllinn í Antwerpen í Belgíu eftir að stærsta flugfélagið sem flýgur um völlinn hefur tilkynnt að félagið ætli sér að hætta nánast öllu áætlunarflugi.
VLM Airlines hefur frá stofnun félagsins árið 1993 haft höfuðstöðvar á Antwerpen-flugvelli og flýgur félagið í dag til sjö áfangastaða
frá flugvellinum.
Fyrr í þessum mánuði tilkynnti félagið að til stæði að hætta öllu áætlunarflugi nema til London City og Zurich en þess í stað
á að einblína eingöngu á leiguflug og viðhalds- og viðgerðarverkefni.
Þessi tíðindi eru mjög slæm þar sem niðurskurður VLM Airlines þýðir að félagið mun aðeins fljúga til London City og Zurich
frá Antwerpen-flugvelli en aðeins þrjú flugfélög fljúga um flugvöllinn.
Fokker 50 flugvél VLM Airlines
Hin tvö eru Flybe sem flýgur þaðan til London Southend og TUI fly Belgium sem flýgur þaðan
til Alicante, Barcelonda, Málaga, Murcia, Nador og Toulon.
Um miðjan september verða því mun færri flugtök og lendingar á flugvellinum en samdrátturinn
setur þrýsting á stjórn flugvallarins til að berjast fyrir tilvist hans þar sem ráðherrar og stjórnmálaflokkar í Belgíu segja að enn
minni flugumferð réttlæti það að flugvellinum verði lokað.
Það hafa verið mikil forréttindi fyrir Belgja að geta notað þennan flugvöll en Sósíaldemókrataflokkurinn í Flæmingjalandi
segir að ekki verði hægt að réttlæta lengur tilvist flugvallarins þar sem það eru aðeins 40 kílómetrar í alþjóðaflugvöllinn í Brussel.
„Við munum ekki ná að reka flugvöllinn með hagnaði eftir þetta. Stjórnin í Flæmingjalandi greiðir háar upphæðir til þess
að halda flugvellinum opnum á hverju ári. Sennilega um 120 milljónir evra“, segir Paul Meeuws hjá Sósíaldemókrataflokknum en aðrir flokkar taka í sama streng.
„Það hefur verið talað um það í mörg ár að flugvöllurinn í Antwerpen sé of lítill og eigi sér enga framtíð og þá sérstaklega í ljósi
þess hversu nálægt hann er íbúðarbyggð sem liggur í kringum völlinn“, segir Ingrid Pira, fulltrúi flæmska þingsins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.