flugfréttir
Boeing 737 rann út af braut í Sochi í Rússlandi
Þotan var að koma frá Moskvu þegar slysið átti sér stað rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi að íslenskum tíma
Að minnsta kosti 18 slösuðust er rússnesk farþegaþota af gerðinni Boeing 737-800 frá flugfélaginu UTAir rann út af braut í lendingu á flugvellinum í borginni Sochi í gærkvöldi.
Þotan var að koma frá Moskvu og var í aðflugi að braut 02 á flugvellinum en þegar vélin var á lokastefnu
var skipt um braut þar sem vindátt hafði breyst og hættu flugmennirnir því við aðflugið og var stefnt á að lenda á braut 06 þess
í stað.
Þotan var í 2.300 fetum í aðflugi að braut 06 þegar aftur var hætt við aðflugið þar sem vindur hafði snúist úr 200° yfir í 060°
en í næsta aðflugi var einnig hætt við lendingu og þá í 400 fetum þar sem vindáttinn hafði aftur breyst.
Í þriðja aðfluginu lenti flugvélin loksins en rann út af brautinni og endaði á árbakka með þeim afleiðingum
að vængur vélarinnar brotnaði og annar hreyfillinn varð alelda auk þess sem hjólastell brotnuðu undan vélinni.
174 farþegar voru um borð í þotunni og sex manna áhöfn og komustu allir lífs af úr vélinni
Talið er að vélin hafi farið út af brautinni vegna meðvinds með miklum vindstyrk en þar að auki var mikil úrkoma
er slysið átti sér stað.
Samkvæmt veðurupplýsingum á flugvellinum í Sochi þá höfðu sterkustu vindhviðurnar farið upp í 40 hnúta og þá
hafði þrumurveður gengið yfir völlinn.
Um borð voru 164 farþegar og sex manna áhöfn en samkvæmt rússneskum yfirvöldum þá slösuðust 18 manns en átta
af þeim voru fluttir á sjúkrahús. Þá lést einn flugvallarstarfsmaður eftir að hafa fengið hjartaáfall við björgunarstörf.
Fram kemur að slökkvilið hafi náð að slökkva eldinn, sem kom úr öðrum hreyflinum, á 8 mínútum og þá tók
17 mínútur að rýma flugvélina.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.