flugfréttir
Ofhlaðin flugvél brotlenti á stöðuvatni í Súdan
- Fleiri farþegar um borð en sæti gera ráð fyrir
Flugvélin brotlenti á Yirol-vatninu í Suður-Súdan
Að minnsta kosti 18 létu lífið í flugslysi er farþegaflugvél af gerðinni Let L-410 brotlenti á Yirol-vatni í Suður-Súdan í morgun.
Flugvélin var í aðflugi að flugvellinum í bænum Yirol eftir flug frá borginni Juba þegar slysið átti sér stað en fram kemur
að flugvélin hafi verið ofhlaðin og voru fleiri farþegar um borð en leyfilegt er.
Aðeins tveir lifðu slysið af; aðstoðarflugmaðurinn og 6 ára gamalt barn en meðal þeirra sem létust var ítalskur læknir og biskupinn í Yirol.
Stjórnvöld segja að flugrekstaraðili vélarinnar sé fyrirtækið „Baby Air“ en vélin var í eigu úkraínska fyrirtækisins Slaver Company.
Flugvélin var smíðuð árið 1984 og hafði hún gengist undir yfirhalningu í fyrra eftir að hafa verið í geymslu í átta ár.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.