flugfréttir
Þremur flugmönnum sagt upp í kjölfar flugslyss í júlí
Flugvélar AeroMexico á flugvellinum í Benito Juárez International flugvellinum í Mexíkóborg
Þremur flugmönnum hjá AeroMexico Connect hefur verið sagt upp í kjölfar flugslyss sem átti sér stað þann 31. júlí á þessu ári er þota af gerðinni Embraer E190 fór út af braut í flugtaki á flugvellinum í mexíkósku borginni Durango.
Þrátt fyrir að niðurstaða rannsóknarnefndar flugslysa hafi leitt í ljós að aðalorsök flugslyssins hafi verið slæmt veður þá hefur
framkvæmdarstjóri flugfélagsins tilkynnt að þremur flugmönnum hafi verið sagt upp í tengslum við slysið.
Í bréfi frá AeroMexico Connect kemur fram að þrátt fyrir slæmt veður þá er það niðurstaða stjórnar félagsins að flugmennirnir
þrír, sem allir voru í stjórnklefanum er slysið átti sér stað, hafi ekki brugðist rétt við í samræmi við verklagsreglur félagsins.
Fram kemur að tveir flugmenn, sem hafa starfað lengi hjá flugfélaginu, hafi látið nýjan flugmann, sem var aðstoðarflugmaður
í þjálfun, vera í hlutverki flugstjóra („pilot in command“) sem brýtur í bága við reglur AeroMexico Connect.
Fram kemur að flugmennirnir hafi ætlað að hætta við flugtakið í flugtaksbruninu sökum snarprar vindhviðu er flugvélin var við það að hefja sig á loft en vélin fór út af brautinni og staðnæmdist út í gróðurlendi fyrir aftan brautarendann þar sem hún varð alelda.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.