flugfréttir

Sólóflugnemi lenti giftusamlega eftir að hafa misst hjól í flugtaki

- Lætur þetta ekki stoppa sig í að gera það sem hún elskar að gera

11. september 2018

|

Frétt skrifuð kl. 07:16

Maggie Taraska var á leið í sitt fyrsta yfirlandsflug í einflugi er annað hjólið losnaði af flugvélinni í flugtaki

17 ára stúlka, sem er flugnemi í einkaflugmannsnámi í Bandaríkjunum, missti annað aðalhjólið undan Piper PA-28 Cherokee kennsluvél sinni í flugtaki um helgina.

„Slæmir hlutir gerast alltaf öðru hvoru og það er ekki hægt að láta það stöðva sig í að gera það sem maður elskar að gera“, sagði Maggie Taraska á blaðamannafundi eftir atvikið en henni tókst að lenda flugvélinni giftusamlega á einu aðalhjóli og nefhjólinu.

Maggie fór í loftið frá Beverly Regional flugvellinum í Massachusetts sl. sunnudag á leið í sitt fyrsta yfirlandsflug („cross country flug“) í einflugi til Portland í Maine sem er hluti af æfingum til einkaflugmannsskírteinis.

Maggie ætlar sér að fara strax aftur í loftið í vikunni

„Um leið og ég var komin í loftið heyrði ég undarlegt hljóð og vissi að eitthvað var að“, segir Maggie í viðtali í gær.

„Ég var hrædd og stressuð. Ef þið hlustið á upptöku úr samtali milli mín og flugturnsins þá má heyra það mjög glöggt“, segir Maggie sem brast í grát í fyrstu er hún talaði við flugturninn og bað um að fá að koma til baka en flugkennarinn hennar leiðbeindi henni fagmannlega allan tímann í gegnum fjarskipti á meðan starfsfólk flugvallarins undirbjó sig fyrir nauðlendingu vélarinnar.

„Við létum hana vera í loftinu þangað til að við vorum vissir um að hún væri tilbúin til að lenda“, segir Gloria Bouillon hjá Beverly Regional flugvellinum.

Piper PA-28 flugvélin eftir lendinguna

Walter Taraska, faðir Maggie, sá er dóttir sín kom inn til lendingar með tvö hjól og heyrði hann einnig samskiptin í turninum en Walter segir að lendingin hafi heppnast sennilega betur en hjá honum sjálfum þrátt fyrir að hann hafi mun fleiri flugtíma heldur en hún.

Mikil gleði braust út í flugturninum er vélin lenti en Maggie segist ætla fara í loftið strax aftur í þessari viku en mögulega mun hún taka sér frí í einn dag.



Hér má heyra hljóðupptökur úr flugturni - 4 mismunandi upptökur



Upptaka nr. 2 af 4



Upptaka nr. 3 af 4



Upptaka nr. 4 af 4









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga