flugfréttir
Norwegian mun hætta flugi til Singapore
Dreamliner-þota Norwegian
Norwegian hefur ákveðið að hætta að fljúga til Singapore í janúar eftir áramót en ákvörðunin kemur mörgum verulega á óvart þar sem félagið ætlaði sér stóra hluti í Asíu.
Norwegian flýgur til Singapore frá London Gatwick en aðrir áfangastaðir félagsins í Asíu eru Bangkok og Krabi
í Taílandi auk Dubai.
Norwegian ætlaði sér að auka umsvif sín í Asíu með flugi til fleiri áfangastaða og stóð til að
hefja flug til Kína en félagið hefur ekki gefið upp hver ástæðan sé á bakvið að hætta flugi
til Singapore.
Tore Østby, yfirmaður yfir stefnumótun Norwegian, sagði á dögunum að enn sem komið er þá sé markaðurinn í flugi
á milli Evrópu og Asíu erfiður viðureignar og sé mun auðveldara að fljúga yfir Atlantshafið til Ameríku.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.