flugfréttir
Primera Air mun fljúga til Norður-Ameríku frá Madríd
Airbus A321neo þota Primera Air í aðflugi að flugvellinum í Boston
Primera Air heldur áfram að bæta við fyrirhuguðum áfangstöðum í Evrópu sem félagið mun fljúga frá yfir Atlantshafið og hefur Madríd nú bæst við í hópinn í leiðarkerfið til Norður-Ameríku.
Tilkynnt hefur verið að Primera Air muni hefja flug frá Madríd til Boston og New York (Newark)
í Bandaríkjunum og til Toronto í Kanada.
Fyrsta beina flugið frá Madríd yfir Atlantshafið verður flogið til Newark-flugvallarins þann
16. júlí 2019 og mánuði síðar hefst flug til Boston, þann 16. ágúst. Degi síðar (17. ágúst)
hefst því næst flug frá Madríd til Toronto.
„Eftir að hafa flogið reglulega milli norðurhluta Evrópu og Spánar í langan tíma þá
gleður það okkur að geta boðið upp á lágfargjaldaflug yfir Atlantshafið frá Madríd“, segir
Anastasija Visnakova, hjá Primera Air.
Primera Air hefur sl. vikur tilkynnt um nýjar flugleiðir yfir Atlantshafið frá Berlín, Brussel og
Frankfurt og hefjast öll flugin næsta sumar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.