flugfréttir

Mikill skortur á flugmönnum til að fljúga einkaþotum

- Flugfélögin ráða til sín einkaþotuflugmenn í stórum stíl

13. september 2018

|

Frétt skrifuð kl. 17:09

Ekki er nóg að eiga einkaþotu því eigandinn þarf einnig að hafa flugmenn til þess að fljúga þeim

Skortur á flugmönnum í Evrópu er farinn að hafa áhrif á sölur á einkaþotum en eigendur lúxusþotna eiga nú í erfiðleikum með að finna flugmenn til þess að fljúga sér milli staða.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Colibri Aircraft sem sér fram á áramhaldandi skort á einkaþotuflugmönnum næstu árin.

Colibri Aircraft segir að í 70% tilfella, sem fyrirtækið hefur viðskipti með einkaþotur, koma upp vandamál með að finna áhafnir til þess að fljúga þeim fyrir flugrekendur og eigendur en fyrir 5 árum síðan komu slík vandamál upp í 20 prósent tilfella.

„Í mörgum tilfellum hafa einkaþotuflugmenn verið ráðnir til flugfélaganna sem eru sjálf í vandræðum með að finna flugmenn til þess að fljúga farþegaþotum sínum í tengslum við aukin umsvif og hafa flugfélög ráðið til sín flugmenn sem hafa flogið einkaþotum“, segir Oliver Stone, rekstrarstjóri Colibri Aircraft.

Dregið hefur úr sölu á einkaþotum þar sem viðskiptavinir finna ekki flugmenn til að fljúga þeim

Þá hefur starfslokaaldur einnig áhrif á skort á einkaþotuflugmönnum og aukin eftirspurn eftir flugmönnum í Asíu, Afríku og Miðausturlöndum.

„Eins og staðan er í dag þá er skortur á áhöfnum er kemur að einkaþotum orðið mikið vandamál sem hamlar þeim sem vilja nýta sér þessi þægindi“, segir Stone.

Vandinn lýsir sér í því að aðilar sem hyggjast festa kaup á einkaþotu gætu hugsað sig tvisvar um ef þeir fá enga flugmenn til þess að fljúga þotunni og hætta þeir þá frekar við slík kaup.

„Áhættan sem þeir taka við að kaupa einkaþotu er sú að miklar líkur eru á því að þeir fá engan flugmann til þess að fljúga þeim“, segir Stone.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga