flugfréttir
Íranir höfða mál gegn ATR
- Krefjast þess að fá restina af flugvélunum eða að fá skaðabætur
ATR 72-600 flugvél í litum Iran Air
Ríkísstjórn Írans ætlar að höfða mál gegn flugvélaframleiðandanum ATR vegna brots á kaupsamningi á þeim tuttugu ATR 72-600 flugvélum sem áttu að afhendast til ríkisflugfélagsins Iran Air.
ATR hefur afhent 13 flugvélar til Írans en framleiðandinn náði ekki að ljúka afhendingu
á sjö flugvélum áður en endurupptekið viðskiptabann skall á að fyrirskipun frá bandarískum
stjórnvöldum.
ATR tilkynnti í sumar að framleiðandinn hefði gefist upp á því að reyna að ná að afhenda
allar vélarnar og var ákveðið að taka ekki áhættuna á því að afhenda fleiri flugvélar til Iran Air til að óhlýðnast
ekki stjórnvöldum vegna samstarfsins við Airbus.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, afturkallaði ákvörðun stjórnvalda um að aflétta viðskiptaþvingunum við Írani og breytti kjarnorkusamkomulaginu sem undirritað var árið 2015 og
fengu fyrirtæki 90 daga frest til þess að klára þau viðskipti sem þau höfðu gert við Írani og rann sá frestur út þann 7. ágúst.
„Þetta fyrirtæki þarf annað hvort að standa við þær skuldbindingar sem það gerði í samningnum
og klára að afhenda allar flugvélarnar eða greiða okkur skaðabætur“, segir Mohammadreza Rezaei-Kouchi, þingmaður
á íranska þinginu.
ATR hafði sótt um nýtt leyfi frá bandarískum stjórnvöldum með undanþágu til þess að geta
klárað að afhenda flugvélarnar til Írans en bandarísk stjórnvöld höfnuðu þeirri beiðni í júlí.
Airbus hafði gert samning við Írani í desember árið 2016 um sölu á tæplega 100 þotum af
gerðinni Airbus A320, A321, A330 og Airbus A350 og náðist að afhenda sjö Airbus A320 þotur
og tvær Airbus A330 breiðþotur til Írans áður en viðskiptabannið var sett aftur á.
Stjórnvöld í Íran hafa hinsvegar ekki tilkynnt hvort að til stendur að fara í mál við Airbus.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.