flugfréttir

Interjet sagt ætla að skila öllum Superjet-þotunum til Rússlands

17. september 2018

|

Frétt skrifuð kl. 07:14

Sukhoi Superjet 100 þotan var talin mjög hentug þota fyrir Interjet á sínum tíma en svo hefur hún reynst til mikilla vandræða fyrir flugfélagið

Mexíkóska flugfélagið Interjet ætlar sér að losa sig við allar Sukhoi Superjet 100 þoturnar út flotanum og ætlar félagið að freista þess að skila þeim öllum til rússneska framleiðandans.

Rekstur Superjet-þotnanna hefur ekki gengið snuðrulaust fyrir sig hjá Interjet en félagið hefur meðal annars þurft að rífa varahluti úr nokkrum þotum til þess að halda flotanum á flugi vegna skorts á varahlutum frá Sukhoi.

Sukhoi Superjet 100 þotan átti að marka nýtt upphaf fyrir Interjet en nokkrum sinnum hefur félagið þurft að leggja þotunum vegna ýmissa vandamála sem hafa komið upp og hefur félagið nú fengið nóg af þotunum.

Sukhoi framleiðandanum þurfti í sumar að greiða Interjet bætur upp á 4,2 milljarða króna vegna viðhaldskostnaðar sem félagið hefur þurft að leggja út fyrir en viðhaldskostnaður félagsins jókst um 20 prósent í fyrra.

Interjet hefur 22 Sukhoi Superjet 100 þotur í flotanum í dag

Interjet hefur 22 þotur af þessari gerð í flotanum og er þessa flugvélategund ekki að finna hjá neinu öðru flugfélagi í Ameríku en Interjet hefur næststærsta Sukhoi-flota heims á eftir Aeroflot.

Samkvæmt heimildarmönnum, sem eru kunnugir málinu, þá vill Interjet núna skila öllum þotunum tuttugu og tveimur aftur til Sukhoi í Rússlandi og er verið að skoða möguleika á að panta Airbus A320neo þotur í staðinn.

Interjet taldi Superjet-þotuna vera mjög hentugan kost á sínum tíma vegna þess hita sem ríkir í Mexíkó og hæð margra flugvalla yfir sjávarmáli og þótti vélin henta vel fyrir þær aðstæður auk þess sem þotan var mun ódýrari í innkaupum heldur en CSeries-þoturnar frá Bombardier og A320neo þotan frá Airbus.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga