flugfréttir

Vilja leita betur að braki úr hreyfli á Grænlandsjökli

17. september 2018

|

Frétt skrifuð kl. 15:45

Þyrla Air Greenland við brak úr hreyfi Air France risaþotunnar á Grænlandsjökli

Rannsóknarnefnd flugslysa í Frakklandi ætlar sér að hefja leit á Grænlandsjökli að braki úr hreyfli á Airbus A380 risaþotu Air France.

Risaþotan var í áætlunarflugi milli Parísar og Los Angeles þann 30. september 2017 þegar bilun kom upp í einum af fjórum GP7200 hreyflum þotunnar þegar hún var stödd yfir Grænlandsjökli.

Þotan lenti í Goose Bay á Labrador vegna atviksins og ónýti hreyfillinn var fjarlægður af vængnum og öðrum bráðabirgðarhreyfli komið fyrir.

Þyrla frá Air Greenland hafði komið auga á brak úr hreyflinum í ísnum úr lofti en ekki náðist að sækja brakið þar sem vetur var að skella á á Grænlandi en til stóð að fara með brakið á rannsóknarstofu til að rannsaka atvikið.

Þotan var á leið frá París til Los Angeles þann 30. ágúst í fyrra þegar bilun kom upp í einum hreyfli vélarinnar

Franska rannsóknarnefndin og hreyflaframleiðandinn, Engine Alliance, framkvæmdu leit í ísnum af braki í vor og í sumar enn ekki fannst nægilega mikið magn af braki til þess að hægt væri að varpa ljósi á orsök atviksins.

Rannsóknarnefndin hefur nú sótt um leyfi til landsstjórnarinnar á Grænlandi til þess að hefja nýja leit í ísnum af brakinu úr hreyflinum þar sem nauðsynlegt þykir að finna allt brakið.

Vandamálið er hinsvegar að búið er að snjóa yfir brakið og er talið að það sé á um hundrað metra dýpi inn í ísnum en rannsóknarnefndin segist hafa mjög nákvæmar upplýsingar um staðsetninguna og er því talið að það verði ekki vandamál að vita hvar á að byrja að grafa í snjónum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga