flugfréttir
Yfir 1.000 konur í Sádí-Arabíu hafa sótt um að verða flugmenn
- Yfir þúsund umsóknir frá konum bárust til Flynas á einum sólarhring
Flynas hvatti konur til þess að sækja um prógrammið „Future Pilots“ og viðtökurnar létu ekki á sér standa
Sádí-arabíska flugfélagið Flynas fékk yfir 1.000 umsóknir frá kvenmönnum á einum sólarhring sem hafa sótt um að komast í flugnám á vegum flugfélagsins sem leitar nú að hæfum einstaklingum til að verða framtíðarflugmenn hjá flugfélaginu.
Flynas hefur bæði óskar eftir umsóknum fyrir starfi flugmanns auka áhafna en félagið segir að til stendur
að ráða yfir 200 áhafnarmeðlimi auk flugmanna á næstu tveimur árum í tengslum við ört vaxandi umsvif hjá Flynas.
Í fyrra var tilkynnt að konur fengu loksins að keyra bílum í Sádí-Arabíu og tóku fyrstu sádí-arabísku konurnar
bílpróf í vor en styttist í að þær fyrstu hefji flugnám á sádí-arabískri grund en hingað til hafa flugfélög í landinu aðeins ráðið karlmenn í stjórnklefann.
Airbus A320 þota Flynas
Á sama tíma og stjórnvöld í Sádí-Arabíu ákváðu að leyfa kvenfólki að aka bílum var einnig ákveðið að konur mættu fljúga, ganga í herinn auk annarra athafna sem hingað til hefur ekki staðið þeim til boða.
Oxford Aviation Academy opnaði nýlega flugskóla í borginni Dammam og hefur skólinn nú þegar fengið umsóknir frá hundruðum kvenna sem stefna á flugnám en áður fyrr hafa þær þurft að ferðast erlendis til að komast í flugnám þar sem það hefur aðeins verið í boði fyrir karlmenn í Sádí-Arabíu.
Flynas var stofnað árið 2007 og er félagið fyrsta lágfargjaldafélagið í Sádí-Arabíu en félagið hefur 31 þotu í flota sínum
sem allar eru af Airbus-gerð en von er á því að flotinn eigi eftir að telja yfir 110 þotur á næstu árum.
Þeir sem sækja um „Future Pilots“ prógrammið hjá Flynas verða að verða sádí-arabískir ríkisborgarar, þurfa að
uppfylla skilyrði er varðar líkamshæð og þyngd, tala ensku reiprennandi og vera á aldrinum frá 22 ára til 30 ára.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.