flugfréttir

Ólíklegt að ákvörðun verði tekin um Boeing 797 á þessu ári

18. september 2018

|

Frétt skrifuð kl. 19:04

Tölvugerð mynd af Boeing 797

Ekki eru taldar miklar líkur á því að Boeing muni hrinda formlega úr vör Boeing 797 verkefninu á þessu ári en Steven Udvar-Hazy, framkvæmdarstjóri Air Lease flugvélaleigunnar, telur að Boeing 797 verði kynnt til leiks um mitt árið 2019.

Udvar-Hazy segir að þessa stundina sé Boeing að vega og meta þann hreyfil sem mun koma til með að knýja þotuna áfram og segir hann að um vandasama ákvörðun að ræða fyrir Boeing - „Við þekkjum öll það vandamál sem hefur komið upp með nýja hreyfla fyrir Airbus A320neo og Boeing 737 MAX“, segir Udvar-Hazy.

Steven Udvar-Hazy, framkvæmdarstjóri Air Lease

Dennis Muilenburg, framkvæmdarstjóri Boeing, hefur tekið fram að undirbúningsferlið og viðskiptaþróunarvinna gangi vel fyrir sig varðandi Boeing 797.

„Lykilatriðið er að átta okkur á því hvort við séum með vöru sem mun verða hagkvæm í framleiðslu og um það snýst sú vinna sem núna á sér stað og við munum taka ákvörðunina þegar rétti tíminn kemur“, sagði Muilenburg í seinustu viku.

Muilenburg segist eiga von á því að Boeing 797 muni koma á markað kringum árið 2025 og sé bæði verið að vinna að framleiðsluáætlun þessa daganna og áhættumati en talið er að eftirspurn sé eftir allt að 5.000 eintökum af þotu á borð við Boeing 797.

Mögulegt er að stjórn Boeing muni samþykkja að opna fyrir pantanir á þotunni á fyrsta ársfjórðungi 2019 áður en þotan verður kynnt til leiks en það gæti þó dregist fram á vor.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga