flugfréttir
Líkamsrækt um borð í lengsta flug heims
- Leiksvæði fyrir börn, svefnrými og bar í 20 tíma flugi frá Sydney til London
Qantas er að skoða möguleika á að panta Airbus A350-1000 eða Boeing 777-8 fyrir fyrirhugað beint flug frá Sydney til London
Qantas íhugar að bjóða upp á líkamsræktaraðstöðu í einu lengsta flug heims sem flugfélagið ástralska áætlar að fljúga árið 2022 frá Sydney til London.
Engin farþegaþota í dag hefur svo langt flugdrægi að hún geti flogið í beinu flugi frá Sydney til London og hafa
bæði Qantas og British Airways þurft að millilenda hingað til í Asíu til þess að taka eldsneyti á leiðinni.
Qantas hefur beðið bæði Boeing og Airbus um að koma með tillögu að þotu sem gæti flogið beint flug þarna á milli
en um væri að ræða 20 klukkustunda langt flug.
Qantas hefur lýst því yfir að Airbus A350-1000 gæti komið til greina en Airbus þyrfti þá að útfæra vélina sérstaklega
fyrir svona langt flug og breyta eiginleikum hennar en bein fluglína milli Kingsford Smith flugvallarins í Sydney
og London Heathrow eru yfir 17.000 kílómetrar.
Alan Joyce, framkvæmdarstjóri Qantas
Til að auðvelda farþegum hina 20 klukkutíma dvöl er verið að íhuga að um borð í flugvélinni
væri meðal annars lítil aðstaða til líkamsræktar, leiksvæði fyrir börn, svefnsvæði og bar.
Líkamsrækt um borð í flugvél kann að hljóma undarlega en nú þegar má finna sturtu um borð í Airbus A380 risaþotum Emirates og þá hefur Korean Air haft litla fríhafnarverslun í sínum risaþotum.
Alan Joyce, framkvæmdarstjóri Qantas, segist sannfærður um að eftirspurn sé eftir beinu flugi milli London
og Sydney en í mars á þessu ári byrjaði Qantas að fljúga beint flug milli Perth á vesturströnd Ástralíu og London
og hefur sætanýtingin í því flugi sjaldan farið undir 90 prósent og yfir 94% á fyrsta farrými.
Einnig kemur nýja Boeing 777X þotan til greina og er Qantas að skoða möguleika á að panta Boeing 777-8 sem
kemur á markaðinn árið 2022.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.