flugfréttir

Málverkasýning Tolla á Egilsstaðaflugvelli

- Fleiri málverkasýningar framundan á öðrum innanlandsflugvöllum

20. september 2018

|

Frétt skrifuð kl. 16:36

23 ný olíumálverk eftir Tolla verða til sýnis á Egilsstaðaflugvelli

Föstudaginn 21. september næstkomandi kl. 16 verður opnuð sýning á 23 nýjum olíumálverkum eftir Tolla í flugstöðinni á Egilsstöðum en sýningin er í boði Isavia, rekstraraðila flugvallarins, og er sýningin sú fyrsta af nokkrum á verkum Tolla sem settar verða upp á innanlandsflugvöllum á Íslandi á komandi mánuðum.

„Á síðasta ári kom ég að máli við Isavia með þá hugmynd að nýta húsakostinn á flugstöðum landsins til sýningarhalds þar sem þarna væri gott veggjaplás, hátt til lofts og vítt til veggja,“ segir Tolli.

„Lýsing í flugstöðunum er iðulega góð og mikið rennsli af fólki í gegnum húsinn. Var tekið vel í þessa hugmynd af forráðamönnum Isavia og þegar ráðist í að framkvæma þetta.“, segir Tolli sem tekur fram að sýningar hans á flugvöllunum verði vonandi bara þær fyrstu af mörgum.

Áformað er að sýna verk Tolla á fleiri innanlandsflugvöllum

Olíuverkin sem sýnd verða á Egilsstöðum eru öll ný af nálinni, bæði stór og smá eftir því sem húsrúm leyfir og verða öll verkin til sölu.

Málverkasýningin verður ekki eini viðburðurinn sem verður haldinn á Egilsstaðaflugvelli því daginn eftir, Laugardaginn 22. september kl. 11, býður Hjörvar Steinn Grétarsson skákmeistari til fjölteflis í flugstöðinni en þeir sem ná jafntefli eða vinna fá vinninga auk þess sem þrenn aukaverðlaun verða dregin út.

Í fréttatilkynningu frá Isavia kemur fram að áhugasamir geta skráð þátttöku með því að senda tölvupóst á netfangið sverrirg57@gmail.com í síðasta lagi föstudagskvöldið 21. september en einnig verður hægt að skrá sig á staðnum kl. 10.45 ef enn verða laus sæti.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga