flugfréttir
Hafna sögusögnum um samruna Emirates og Etihad Airways
- Úr yrði stærsta flugfélag heims ef til sameiningar kemur
Airbus A380 risaþotur Emirates og Etihad Airways á John. F Kennedy flugvellinum í New York
Emirates og Etihad Airways blása á þær sögusagnir sem gengið hafa um að til standi að sameina flugfélögin tvö.
Það var fréttamiðillinn Bloomberg sem greindi frá því í dag að Emirates væri að íhuga að kaupa Etihad Airways sem hefur
verið einn helsti samkeppnisaðili Emirates en bæði félögin hafa mikil umsvif í Sameinaða arabíska furstadæminu.
Bloomberg segir að þeir hafi heimildir fyrir því að viðræður um sameiningu væru í byrjunarferli og væri rætt um að Emirates
myndi taka yfir rekstur Etihad Airways.
Ef flugfélögin tvö myndu sameinast í eitt félag yrði til stærsta flugfélag í heimi er kemur að sætaframboði en samanlagður flugfloti
félaganna telur í dag 367 en flestar þotur félaganna eru breiðþotur.
Emirates hefur bækistöðvar á flugvellinum í Dubai á meðan heimavöllur Etihad Airways er á flugvellinum í Abu Dhabi en
aðeins eru 116 kílómetrar sem skilja flugvellina að.
Etihad Airways hefur átt erfitt uppdráttar að undanförnu eftir misheppnaðar tilraunir til fjárfestinga í flugfélögum á borð
við Air Berlin og Alitalia.
Emitates og Etihad Airways hafa í dag þvertekið fyrir orðróm um sameiningu og taka flugfélögin tvö það fram að þær fréttir eiga ekki
við nein rök að styðjast.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem rætt hefur verið um að félögin ætli að sameinast og hefur sá orðrómur verið í gangi í nokkur ár.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.