flugfréttir

Flugmaður slasaðist við að handsnúa Cirrus SR22 í gang

- Rauk af stað og klessti á flugskýli

21. september 2018

|

Frétt skrifuð kl. 15:23

Atvikið átti sér stað á flugvellinum í Mason City í Iowa þann 8. september

Flugmaður slasaðist í óhappi sem átt sér stað í Iowa í Bandaríkjunum fyrr í þessum mánuði er eins hreyfils flugvél af gerðinni Cirrus SR-22 klessti á flugskýli eftir að tilraun flugmannsins til að handsnúa mótornum í gang fór úr böndunum.

Atvikið, sem náðist á öryggismyndavél, átti sér stað þann 8. september sl. á flugvellinum í borginni Mason City í Iowa en flugmaðurinn, sem ætlaði í flugferð með einum farþega, hugðist koma mótornum í gang með því að snúa loftskrúfunni.

Ekki vildi betur til en að mótorinn rauk í gang og þykir sennilega að inngjöfin hafi verið í botni með kveikt á kveikjum þar sem vélin rauk af stað eftir flugvallarsvæðinu.

Á myndbandinu má bæði sjá hvar flugmaðurinn reynir að stökkva inn í flugvélina á ferð til að draga aflið af á sama tíma og farþegi hans kastar sér úr vélinni á ferð.

Myndband:



Í annarri öryggismyndavél má sjá annað sjónarhorn sem sýnir hvar flugvélin endar för sína á flugskýli og munaði litlu að hún hefði rekist á Porsche-bifreið sem stendur kyrrstæð við skýlið.

Samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) rannsaka nú atvikið en á ljósmyndum, sem teknar voru innan í flugvélinni, má sjá blóð eftir að sár flugmannsins er hann fékk skrúfuna í sig þegar mótorinn fór í gang.

Annar flugmaður sem var á svæðinu segir að hann hafi farið að flugvélinni og lokað fyrir eldsneytiskranann og slökkti á rafmagni og kveikjum.

Stjórnklefinn á flugvélinni

Í skýrslu frá þriðja flugmanninum sem var á svæðinu kemur fram að flugmaðurinn Cirrus-vélarinnar hafi komið yfir í skýlið hans og spurt hann hvort hann hefði rafgeymi til að gefa sér start þar sem of lítið rafmagn var á vélinni til að starta mótornum. Í framhaldi af því reyndi hann að snúa mótornum í gang með fyrrgreindum afleiðingum.

Flugmaðurinn, sem er atvinnuflugmaður með reynslu á Cirrus SR22, fór á sjúkrahús til að láta gera að meiðslum sínum.









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga