flugfréttir
South African sagt tæknilega gjaldþrota
- Sagt að spilling innan stjórnarinnar sé að fara með félagið í gröfina
Flugvélar South African Airways á flugvellinum í Jóhannesarborg
South African Airways mun ekki birta afkomuskýrslu fyrir fjármálaárið 2017 til 2018 fyrir ríkisstjórn landsins eins og lög gera ráð fyrir þar sem flugfélagið er sagt vera tæknilega gjaldþrota.
Þetta kemur fram í netmiðlinum City Press sem segir að South African þurfi að setja eignir félagsins á sölu
þar sem ríkisstjórn Suður-Afríku ætlar ekki að setja meira fé í rekstrinn.
Skuldir South African Airways í lok júlímánaðar námu 104 milljörðum króna og íhugar stjórn félagsins
að selja flugvélaeldhúsið og frakthluta félagsins, SAA Cargo, til að losa um lausafé.
Einn stjórnarmeðlimur innan flugfélagsins segir að vandamálið við rekstur félagsins sé ekki hátt eldsneytisverð eða
veikt gengi suður-afríska gjaldmiðilsins heldur sé vandinn fólginn í spillingu, svikum og þjófnaði innan stjórnarinnar.
„Vandamálið er ekki einu sinni markaðurinn því hann er góður og eftirspurning næg. Það eru spilltir einstaklingar innan
stjórnar félagsins sem eru að ræna South African að innanverðu“, segir aðili sem kunnugur er málinu.
Viðsnúningsáætlun félagsins hefur engan veginn gengið eftir og hefur tapreksturinn hlaupið á nokkrum milljörðum undanfarin misseri
á sama tíma og framtíðarspá gerði ráð fyrir hagnaði.
Ríkisstjórn landsins hafði þegar sett 144 milljarða króna í rekstur félagsins sem er núna uppurið og þarf félagið á
167 milljörðum krónum á að halda til að þrauka í 3 ár til viðbótar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.