flugfréttir
Einkaþota fór út af í lendingu í Suður-Karólínu
- Hjón komust lífs af en flugmennirnir létu lífið
Fjórir voru um borð í einkaþotunni, hjón og tveir flugmenn en báðir flugmennirnir létust
Að minnsta kosti tveir létust er einkaþota af gerðinni Dassault Falcon 50 fór út af braut í lendingu á flugvellinum í Greenville í Suður-Karólínu í gær.
Einkaþotan rann út af brautinni eftir lendingu
og fór út af flugvallarsvæðinu og staðnæmdist nálægt vegi sem liggur í kringum flugvöllinn þar sem skrokkur
vélarinnar brotnaði upp í tvo hluta við stjórnklefann.
Þeir látnu voru flugmenn vélarinnar, flugstjórinn, John Christian Caswell, sem var 49 ára, og aðstoðarflugmaðurinn, Steve Fox, sem var 66 ára.
Tveir farþegar voru um borð í einkaþotunni sem voru hjón en þau lifðu slysið af en eru alvarlega slösuð að sögn bandarískra fjölmiðla.
Einkaþotan var af gerðinni Dassault Falcon 50
Orsök slyssins eru enn ókunn en talið er að einkaþotan hafi ætlað að lenda í Greenville til að sækja fleiri farþega.
John Frasher, yfirmaður flugvallarins í Greenville, segir að þetta sé versta flugslysið í 20 ár á flugvellinum en hann sá
sjálfur er einkaþotan lenti en af einhverjum orsökum þá náði hún ekki að stöðva sig af áður en brautin var á enda.
Ekki er vitað hvaðan þotan var að koma en hún er skráð hjá fyrirtækinu Global Aircraft Acquisitions í Delaware.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.