flugfréttir
Guillaume Faury mögulega næsti forstjóri Airbus
Guillaume Faury er í dag yfirmaður yfir farþegaþotudeild Airbus
Sagt er að Guillaume Faury verði að öllum líkindum gerður að framkvæmdarstjóra Airbus en Faury er í dag yfirmaður yfir farþegaþotudeild Airbus.
Airbus hefur verið að leita að nýjum framkvæmdarstjóra frá því að Tom Enders sagði starfi sínu laus og mun hann víkja
úr forstjórastólnum á næsta ári.
Þónokkrar sviptingar hafa verið í stjórn Airbus en Fabrice Brégier hætti í fyrra sem framkvæmdarstjóri hjá Airbus í kjölfar
deilna milli hans og Tom Enders og þá hætti John Leahy sem sölustjóri Airbus um sl. áramót.
Guillaume Faury var gerðir að yfirmanni farþegaþotudeildar í desember 2017 og tók hann við stólnum af Brégier en samkvæmt
heimildarmönnum sem eru kunnugir málinu þá gæti Airbus tilkynnt Faury sem nýjan framkvæmdarstjóra á fundi sem fram fer
þann 13. nóvember.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.