flugfréttir

Hvetja Boeing til að smíða 797 í Washington

4. október 2018

|

Frétt skrifuð kl. 09:11

Boeing stefnir á að Boeing 797 komi á markaðinn kringum árið 2025

Washington-ríki fer fram á og telur að Seattle-svæðið henti best fyrir framleiðslu á nýju farþegaþotunni sem Boeing hyggst framleiða á næstunni sem nefnd hefur verið Boeing 797.

Hópurinn „Choose Washington NMA“ segir að í þessum mánuði verði birt skýrsla með greinargerð og meðmælum sem munu sýna fram á að framleiðsla á Boeing 797 muni koma sér best fyrir efnahaginn í fylkinu.

Hópurinn var skipaður af Jay Inslee, ríkisstjóra Washington, en meðal annars voru fengin til fyrirtækin Teal Group og Price Waterhouse Coopers til að vinna að skýrslunni sem er ætlað að þrýsta á Boeing til að smíða þotuna á heimavelli fyrirtækisins.

Í skýrslunni kemur fram að í ljósi þess að enginn staður í heiminum búi yfir eins miklu hugviti og þekkingu er kemur að smíði á flugvélum líkt og Washington sé það best fyrir atvinnulífið og Boeing að smíða Boeing 797 á Seattle-svæðinu.

Fréttavefurinn Leeham News hefur greint málið frá ýmsum hliðum og er það mál flugsérfræðinga að það eina sem vantar í skýrsluna sé að taka mið af því frá hvaða sjónarhóli Boeing sér hlutina sem er þörf á reyndum sérfræðingum og verkfræðingum sem er forgangsatriði fyrir framleiðandann og telur Boeing að þá sé ekki endilega að finna í Washington.

Jay Inslee, ríkisstjóri Washington, heldur ræðu í verksmiðjum Boeing í Everett í sumar

Í grein Leeham News kemur fram að Boeing standi frammi fyrir þeim vanda að 5.000 verkfræðingar og tæknifræðingar munu láta af störfum hjá Boeing á næstu 5 til 10 árum sem er sá tími sem Boeing 797 á að koma á markaðinn og engin áform eru uppi um hvernig standi til að leysa þann vanda.

Skortur á verkfræðingum er sögð vera ein af þeim ástæðum að Boeing hefur ákveðið að fara í samstarf við Embraer í Brasilíu þar sem Embraer hefur stóran herafla af verkfræðingum sem skortir verkefni nú þegar þróun á nýju E2 þotunum er á enda og vélin tilbúin fyrir fjöldaframleiðslu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga