flugfréttir
Flugumferðarstjóri hringdi sig inn veikan - 26 flugferðum aflýst
Frá Kingsford Smith flugvellinum í Sydney
Þónokkur röskun varð á flugi um Kingsford Smith flugvöllinn í Sydney í morgun eftir að flugumferðarstjóri einn hringdi sig inn veikan á síðustu stundu áður en hann átti að mæta á vakt.
Þetta varð til þess að flugturninn var undirmannaðir og var ekki hægt að leyfa eins mikla flugumferð um flugvöllinn
á tímabili og þurfti að aflýsa 26 brottförum sem hafði keðjuverkandi áhrif á tengiflug á öðrum flugvöllum í Ástralíu þar sem
farþegar urðu strandaglópar.
Meðal flugfélaga sem þurftu að aflýsa flugi voru Qantas, QantasLink, Tiger Air, Jetstar og Virgin Australia en flugvöllurinn
þyrfti að endurskipuleggja daginn og var flug komið í eðlilegt horf eftir hádegi að áströlskum tíma.
Þar sem að flugturninn var undirmannaður þurfti að auka þann tíma sem líður á milli flugtaka og lendinga en margir farþegar lýstu yfir óánægju sinni á samfélagsmiðlum og furðuðu sig á því að veikindi meðal eins flugumferðarstjóra gæti haft svona víðtæk áhrif.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.